2010 – ár uppgjörs og sátta Jóhanna Sigurðardóttir skrifar 31. desember 2009 06:00 Árið sem nú er að líða var mörgum erfitt. Það var ár viðbragða við hruni gengis og banka, ár mótmæla, stjórnarskipta, kosninga og fjárhagsvanda. Það var einnig árið þegar hrein meirihlutastjórn jafnaðarmanna og félagshyggjufólks tók við stjórnartaumunum í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Sögulegt hlutverk núverandi ríkisstjórnar er uppgjör og endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hörmulegan viðskilnað ríkisstjórna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þetta hefur reynst vandasamt viðfangsefni en stjórnin hefur sýnt staðfestu og náð öllum helstu markmiðum sínum á árinu. En verkefnið er rétt að hefjast. Framundan eru spennandi tímar við mótun íslensks samfélags og skiptir miklu að ríkisstjórninni takist að festa jafnaðarstefnuna í sessi svo hér geti þróast farsælt velferðarþjóðfélag í norrænum anda. Ég tel að Íslendingar hafi brugðist skynsamlega við efnahagserfiðleikum í kjölfar gengishruns og falls bankanna. Fjölmörg afrek hafa verið unnin á ýmsum sviðum þjóðlífsins - inni á heimilunum, í fyrirtækjum og hjá opinberum stofnunum. Okkur hefur því gengið mun betur á árinu en spár gerðu ráð fyrir. Í stað efnahagshruns, sem allt stefndi í við upphaf árs, virðist staðan á Íslandi nú sambærileg við efnahagsvanda margra annarra ríkja í okkar heimshluta. Þetta á m.a. við um samdrátt í efnahagslífinu, atvinnuleysi og skuldastöðu hins opinbera. Sá árangur er í raun ótrúlegur þegar haft er í huga að hér hrundi bæði gjaldmiðillinn og bankakerfið í einu vetfangi - nokkuð sem hvergi hefur gerst í vestrænu ríki á friðartímum. Glíman við ríkisfjármálin og skuldavanda ríkissjóðs verður óneitanlega erfið á næstu misserum. Helstu ástæður skuldaaukningar ríkissjóðs vegna falls bankanna eru fjórar: 1. Nauðsynlegt verður að reka ríkissjóð með miklum halla um nokkurra ára skeið til að milda áfallið. Hallinn mun nema 500-600 milljörðum króna eða 30-40% af landsframleiðslu. 2. Greiða þarf um 300 milljarða króna kostnað vegna tæknilegs gjaldþrots Seðlabanka Íslands, upphæð sem nemur ríflega 20% af landsframleiðslu. Það er sláandi að auknar skattaálögur á einstaklinga nema sambærilegri upphæð og vextir og verðbætur af framlagi ríkissjóðs vegna þeirra mistaka sem gerð voru í Seðlabankanum í aðdraganda bankahrunsins. 3. Icesave-skuldbindingin, sé miðað við 88% endurheimtur úr búi Landsbankans, mun kosta sem nemur 10-15% af landsframleiðslu. 4. Kostnaður við endurreisn bankanna mun nema 135 milljörðum króna en hann er þó 250 milljörðum lægri en á horfðist og sparar það ríkinu veruleg vaxtagjöld strax á þessu ári. Ríkisstjórnin hefur kappkostað að hlífa þeim verst settu í samfélaginu eins og kostur er. Á góðæristímum, í stjórnartíð Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, hækkuðu skattar á tekjulægstu fjölskyldurnar um rúm 7% en lækkuðu um 6,9% hjá þeim tekjuhæstu. Nú, á þessum krepputímum, lækka hins vegar skattar fólks með mánaðartekjur undir 270 þúsund krónum. Til að létta skuldabyrði verst settu heimilanna hafa vaxtabætur einnig verið auknar um 4,5 milljarða króna á árinu. Það skiptir því sannarlega máli hverjir stjórna landinu, nú þegar mikilvægt er að jafnræði og réttlæti ríki við endurreisn efnahagslífsins. Horfur eru á að um miðbik næsta árs verði umskipti til hins betra í efnahagsmálum þjóðarinnar og að örla taki á hagvexti að nýju. Þá bíða okkar einnig mikilvægar samningaviðræður við ESB. Þær geta ráðið miklu um efnahagslegt öryggi þjóðarinnar til frambúðar og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Mikilvægt er sömuleiðis að árið 2010 verði tími uppgjörs og sátta. Rannsóknarnefnd Alþingis mun skila skýrslu um orsakir hrunsins í byrjun ársins. Þar þarf allt að koma fram í dagsljósið og ekkert má skilja undan. Það er mikilvæg forsenda þess að sátt náist í samfélaginu og samstaða um þróttmikla endurreisn. Ríkisstjórnin hefur siglt þjóðarskútunni í rétta átt og gengið í verkin af krafti. Á árinu 2009 hefur styrkur íslensks samfélags að sama skapi komið vel í ljós. Við áramót er mér því efst í huga þakklæti til almennings í landinu Ég þakka landsmönnum dugnað þeirra og þrautseigju á árinu sem er að líða og óska þeim árs og friðar. Höfundur er forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jóhanna Sigurðardóttir Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar