Ísland upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA - er í 75. sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2009 10:30 Ólafur Jóhannesson er að gera góða hluti með karlalandsliðið. Mynd/E.Stefán
Íslenska karlalandsliðið er komið upp í 75. sæti á Styrkleikalista FIFA en nýr listi var gefinn út í dag. Íslenska liðið hækkaði sig upp um tvö sæti og hefur þar með farið upp um átta sæti á árinu 2009. Þetta var þriðji mánuðurinn í röð þar sem íslenska liðið hækkar sig. Liðið var í 83. sæti í desember, 80. sæti í janúar og í 77. sætinu í síðasta mánuði. Það hefur orðið mikil breyting á stöðu íslenska liðsins á síðustu mánuðunum því það er ekki lengra síðan en í september síðastliðnum að Ísland var í 107. sæti á listanum. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur því komið liðinu upp um 32 sæti á aðeins hálfu ári. Norðmenn, sem eru með Íslendingum í riðli í undankeppni fyrir HM 2010, eru ein af þeim þjóðum sem eru hástökkvarar listans í þetta skiptið. Norðmenn fara alls upp um 11 sæti og eru í 45. sæti en þar vegur þungt sigur liðsins á Þjóðverjum í fyrsta leiknum undir stjórn Egil Drillo Olsen. Hinir mótherjar Íslendinga í riðlinum eru í eftirtöldum sætum: Holland er í 3. sæti, Skotland er í 28. sæti og Makedónía í 62. sæti. Evrópumeistarar Spánverjar eru áfram í efsta sæti listans en Evrópuþjóðir skipa fjögur hæstu sætin. Þýskaland er í öðru sæti, Holland er í þriðja sæti og Ítalía í því fjórða. Brasilíumenn koma síðan í fimmta sætinu efstir þjóða utan Evrópu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Þú setur ekki svona pressu á átján ára stelpu“ Fótbolti Nördarnir sem sigruðu Ísland: „Það fóru allir að hlæja“ Fótbolti Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Enski boltinn Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Fótbolti Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Íslenski boltinn Mætti inn á með brúðkaupsmyndina á legghlífinni og breytti leiknum Fótbolti Ofurhugi endaði lífið í sundlaug eftir að svifvængjaflug hans fór á versta veg Sport Arndís Diljá í úrslit á EM: „Ótrúlega gaman að hafa náð því“ Sport Birnir Snær genginn til liðs við KA Íslenski boltinn Guðrún kveður Rosengård Fótbolti Fleiri fréttir Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Birnir Snær genginn til liðs við KA „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Árni farinn frá Fylki „Mikið undir fyrir bæði lið“ FHL bætir tveimur bandarískum við hópinn Sjáðu hvernig FH rassskellti KA-menn í Krikanum í gær Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sjá meira