Segir Steingrím J. forhertan 22. apríl 2007 19:15
Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð.Steingrímur J. nýtur þess í skoðanakönnunum að vera talinn ekta náttúruverndarsinni, sagði Jón Baldvin. Þessi mikli náttúruverndarmaður sé hins vegar forhertur og eindreginn stuðningsmaður landbúnaðarstefnu Framsóknar, sem eigi stóran þátt í því að Ísland sé hið tötrum klædda land. Landbúnaðarstefna Framsóknar sé það sem Kiljan kallaði "hernaðinn gegn landinu", - uppblástur og gróðureyðing.Þessi sama landbúnaðarstefna gangi einnig gegn hagsmunum fátækra þjóða. Sá sem styðji búverndarstefnu hinna feitu, hvítu og ríku sé að forakta málstað hinna snauðu og fátæku í heiminum. Íslendingar séu mestu öfgamennirnir í því. Landbúnaðarstyrkir á Íslandi séu tvöfalt meiri en hjá Evrópusambandinu. Við séum að loka mörkuðum okkar fyrir hinum fátæku. Afleiðingarnar séu hungur og vesöld hjá helmingi mannkyns.Jón Baldvin sakaði Vinstri græna einnig um að ganga gegn hagsmunum launþega og verkalýðshreyfingar. Sá sem styðji forsendur okursamfélagsins, annarsvegar landbúnaðarbixið, - ofurtollana, - og sá sem styður af þjóðernisástæðum efnahagsstefnu Davíðs Oddssonar, það er að segja að slá skjaldborg um ónýta krónu, - hann er að segja: Ég styð okurþjóðfélagið íslenska, sem býður fólki upp á okurvexti og okurverð. Þetta sé ekki róttækni. "Þetta er að slá skjaldborg um óbreytt ástand. Svona eiga vinstri menn ekki að tala," sagði Jón Baldvin.
Stj.mál Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Sjá meira