Innlent

Inn­brot á veitinga­stað og grunur um í­kveikju í bif­reið

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nokkrir voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og sektaðir fyrir of hraðan akstur.
Nokkrir voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og sektaðir fyrir of hraðan akstur.

Grunur leikur á um að gerð hafi verið tilraun til íkveikju í bifreið í Kópavogi í gærkvöldi eða nótt. Eldur kom þannig upp við afturdekk bifreiðar en vegfarendum tókst að slökkva hann áður en skemmir urðu á bifreiðinni.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni næturinnar.

Slökkvilið var sent á staðinn þegar tilkynnt var um eld í annarri bifreið, í Breiðholtinu. Sú bifreið skemmdist töluvert en talið er að kviknað hafi í út frá rafgeymi.

Einn var handtekinn í miðborginni vegna gruns um sölu fíkniefna og annar fyrir vörslu og þá voru nokkrir stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Þá voru fjórir stöðvaðir í póstnúmerinu 108 fyrir of hraðan akstur.

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað á veitingastað í póstnúmerinu 104 og er það mál í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×