Minna tap hjá Atlantic Petroleum 5. mars 2007 15:57
Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum skilaði tapi upp á rúma 8,1 milljón danskra króna, jafnvirði rétt rúmra 96 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er nokkru minna tap en árið áður en þá tapaði félagið tæplega 10,4 milljónum danskra króna, sem jafngildir 123,3 milljónum íslenskra króna. Í uppgjöri félagsins kemur fram að rekstrartap Atlantic Petroleum á árinu hafi numið tæpum 11,5 milljónum danskra króna, tæplega 136,37 milljónum íslenskra króna, samanborið við tap upp á 11,8 milljónir danskra króna, 139,9 milljónir íslenskra króna, árið á undan. Rekstrartapið var nokkru meira en spáð var en gert hafði verið ráð fyrir tapi upp á 10 milljónir danskra króna, 118,6 milljónir íslenskra króna, á árinu. Tap félagsins á fjórða ársfjórðungi í fyrra minnkaði talsvert á milli ára. Tapið nam tæplega 1,5 milljónum danskra króna, tæpum 17,8 milljónum íslenskra króna, samanborið við tap upp á rétt rúmlega 7,3 milljónir danskra króna, 86,5 milljónir íslenskra króna, árið 2005. Í uppgjörinu segir að olíuleit á Chestnut og Ettrick-svæðunum hefjist á seinni helmingi þessa árs og fyrri helmingi næsta árs. Er gert ráð fyrir ívið hærri kostnaði við framkvæmdina á Chestnut-svæðinu en fyrri áætlanir hljóðuðu upp á. Gert var ráð fyrir að kostnaði upp á 45 milljónir danskra króna, jafnvirði rúmlega 533 milljóna íslenskra króna. Nú er hins vegar búist við að kostnaðurinn verði allt að 58 milljónir króna, 687,7 milljónir íslenskra króna. Uppgjör Atlantic Petroleum
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Viðskipti innlent Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Viðskipti innlent Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Atvinnulíf Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Viðskipti innlent Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Viðskipti innlent Engar Robin klementínur á landinu þessi jól Neytendur Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Viðskipti innlent Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Viðskipti erlent Fundinum mikilvæga frestað Viðskipti innlent Frjálsi lífeyrissjóðurinn sameinast LTFÍ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frjálsi lífeyrissjóðurinn sameinast LTFÍ Fundinum mikilvæga frestað Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga Skýrt að verndarráðstafanir þurfi að ná yfir alla utan tollabandalags Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Stöðva rekstur Vélfags Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Ráðinn aðstoðarsköpunarstjóri Hvíta hússins Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Lögleiða þurfi netspilun til að ná stjórn á ástandinu Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fundu „þjóðaröryggis-málma“ á Grænlandi Vélfag hafi ítrekað grafið undan eigin undanþágu Sjá meira