Veltur framtíð Blairs á ESB? 8. maí 2005 00:01
Evrópumálin verða líklega stærsta verkefni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, á þriðja kjörtímabili hans. Takist honum ekki að fá bresku þjóðina til að samþykkja nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins kann það að binda enda á pólitískan feril hans. Þótt Blair hafi sjálfur sagt að málefni Afríku og miðausturlanda séu meðal þeirra utanríkismála sem hann telji mikilvægust á komandi kjörtímabili telja stjórnmálaskýrendur að Evrópumálin og málefni Evrópusambandsins verði þau mál sem hann verði að setja efst á forgangslistann. Evrópumálin komu ekki mikið við sögu í nýafstaðinni kosningabaráttu í Bretlandi en talið er að það verði stærsta verkefni Blairs í upphafi kjörtímabilsins að fá bresku þjóðina til þess að samþykkja nýja stjórnarskrá ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu, líklega á næsta ári. En það verður á brattan að sækja hjá Blair því kannanir sýna að mikill meirihluti er andvígur stjórnarskránni. Stjórnmálaskýrendur segja að takist honum ekki að sannfæra þjóðina í þessum efnum, kunni það að binda enda á pólitískan feril hans. Robin Cook, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, telur að það hefði ekki aðeins slæm áhrif á stöðu Bretlands innan Evrópu, ef Blair mistekst að tryggja samþykki stjórnarskrárinnar, heldur hefði það einnig gríðarlega slæm áhrif á stjórn Verkamannaflokksins. Örlög Blairs kunna aftur á móti að liggja í höndum Frakka sem greiða atkvæði um stjórnarskrá Evrópusambandsins þann 29. maí næstkomandi. Hafni franska þjóðin stjórnarskránni er líklegt að þau áform ESB verði endanlega úr sögunni, og þar með yrði Blair laus allra mála. Samþykki Frakkar hins vegar stjórnarskrána verður Blair, sem verður í forsæti í Evrópusambandinu frá júlí næstkomandi, að sannfæra bresku þjóðina um að gera slíkt hið sama.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent Fleiri fréttir Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Sjá meira