Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. desember 2025 07:21 Myndskeið hefur verið birt af Reiner sem er sagt sýna hann eftir morðin og áður en hann var handtekinn. Nick Reiner, sem er grunaður um að hafa myrt foreldra sína Rob og Michele Reiner, var leiddur fyrir dómara í gær. Athygli vakti að hann var íklæddur kyrtli sem notaður er fyrir fanga sem eru taldir í sjálfsvígshættu. Aðdragandi morðanna virðist vera að skýrast, ef marka má miðla vestanhafs.
Reiner hefur verið ákærður fyrir að myrða foreldra sína snemma á sunnudagsmorgun en hann hefur ekki tekið afstöðu til ákærunnar, það er að segja lýst sig sekan eða saklausan. Greint hefur verið frá því að Reiner hafi yfirgefið samkomu á heimili þáttastjórnandans og grínistans Conan O'Brian á laugardagskvöld, eftir að hafa hegðað sér undarlega við gesti. Er hann meðal annars sagður hafa átt orðaskipti við leikarann Bill Hader. Reiner var í teitinu ásamt foreldrum sínum en virðist hafa farið einn. Reiner bjó í gestahúsi á landareign foreldra sinna en er sagður hafa tékkað sig inn á hótel í Santa Monica eftir að hann yfirgaf teitið. Lögregla er sögð hafa leitað hans á hótelinu, þar sem blóð fannst á herbergi hans, en hann var þá farinn. Myndskeið hafa verið birt af Reiner að kaupa sér drykk í verslun, skömmu áður en hann er handtekinn. Handtakan náðist einnig á myndband. Alsystkini Nick, Jake og Romy Reiner, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segjast nú upplifa ólýsanlegan sársauka vegna harmleiksins. Þau hafi ekki aðeins misst foreldra sína heldur einnig bestu vini sína. Þau þakka fyrir samhug og stuðning en biðja einnig um frið og biðla til fólks um að tempra vangaveltur með samkennd.
Erlend sakamál Bandaríkin Hollywood Morðin á Rob og Michele Reiner Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira