Þarf 10 prósentum meira fylgi 1. maí 2005 00:01
Sjálft kosningakerfið er líka flókið og undarlegt. Íhaldsflokkurinn þarf til að mynda tíu prósentustigum meira fylgi en Verkamannaflokkurinn til að bera sigur úr býtum í kosningunum. Neil Kinnock var leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherraefni sem leiddi flokkinn til sögulegs taps árið 1992. Fimm árum síðar, 1997, var komið að ungum manni, Tony Blair. Hann var þá nýr leiðtogi flokksins og vonarstjarna. Í kosningum vann flokkurinn stórsigur, Blair hlaut mesta meirihluta á þingi í manna minnum, meira en 160 þingsæti, en fékk færri atkvæði en þegar Kinnock leiddi flokkinn. Ástæðan er kosningakerfið í Bretlandi. Til að komast á þing þarf frambjóðandi einungis að hljóta flest atkvæði í sínu kjördæmi, en alls eru þau yfir 600. Þetta þýðir í raun að flokkurinn sem fékk mest fylgi á landsvísu fær ekki endilega flesta þingmenn. Sumum þykir þetta stangast á við grundvallarhugmyndir um lýðræði. Út af þessum mun voru til að mynda yfir 92 þúsund atkvæði á bak við hvern þingmann frjálslyndra demókrata eftir síðustu kosningar. Yfir 50 þúsund atkvæði voru á bak við hvern íhaldsmann en bara ríflega 26 þúsund voru á bak við hvern þingmann Verkamannaflokksins. Þetta breytist svo eftir því hvernig kjördæmin eru skilgreind og hvaða flokkum íbúar þeirra fylgja. Á árum áður var þetta kerfi Íhaldsflokknum í hag en nú greinilega Verkamannaflokknum. Í ár er því reiknað með því að Íhaldsflokkurinn þurfi um tíu prósentustigum meira fylgi en Verkamannaflokkurinn til að fá fleiri þingmenn. Þessi tafla sínir muninn greinilega.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent Fleiri fréttir Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Sjá meira