Meirihlutinn á bláþræði 13. apríl 2005 00:01
Ástæðan er sú að á síðasta sveitarstjórnarfundi kvað Gísli upp þann úrskurð að Bjarni væri vanhæfur til að fjalla um tengingu við Þverárfjallsveg milli Sauðárkróks og Skagastrandar. Varð Bjarni að víkja af fundi vegna þessa. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal forseti sveitarstjórnar njóta stuðnings meirihluta sveitarstjórnar, og þar sem núverandi meirihluti sjálfstæðismanna og Vinstri-grænna hefur aðeins eins atkvæðis merihluta, blasir við að Gísli uppfyllir ekki þetta skilyrði, svo framarlega sem Bjarni Maronsson standi við yfirlýsingu sína. Víst er að á þetta mun reyna á fundi sveitarstjórnar í dag því að fulltrúar Framsóknarflokks hafa farið fram á að gengið verði úr skugga um stuðning við Gísla á fundinum. Gísli segir engar líkur á því að hann muni víkja úr stóli forseta til að leysa þá kreppu sem upp er komin innan Sjálfstæðisflokksins. "Ég sé engin efni til þess að ég víki," segir hann. Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórninni, telur hugsanlegt að núverandi meirihluti haldi velli þó svo að vantraust verði samþykkt á forseta sveitarstjórnar. "Ég tel allar líkur á að þessi meirihluti haldi áfram, hvernig sem hann klórar sig fram úr þessu," segir hann. Hann metur það svo að mestar líkur séu á því að sjálfstæðismenn skipti um mann í brúnni og haldi svo áfram samstarfi við Vinstri-græna. "Þeir hafa hingað til náð að komast í gegnum allan þann mikla ágreining sem milli flokkanna hefur verið og ég held að þeir geri það líka núna," segir Gunnar Bragi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Innlent Fleiri fréttir Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Sjá meira