Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. desember 2025 21:31 Í skóginum er Múmínkastali. Sýn Styttu af Snorkstelpunni úr Múmínálfaheiminum verður komið aftur fyrir í Ævintýraskóginum í Kjarnaskógi. Fjarlægja þurfti styttuna þar sem að persónan er höfundarréttarvarin. Hún snýr formlega aftur á jólaskemmtun félagsins.
Skógræktarfélag Eyfirðinga setti á laggirnar Ævintýragarðinn í sumar en þema leikvallarins er finnski heimur Múmínálfanna, sem Tove Jansson bjó til. Í sumar sagði Roleff Krakström, forstjóri Moomin Characters, að hugmyndin að garðinum, nafnið og markaðssetning hans hafi verið brot á höfundarrétti, en ekki kastalinn sjálfur. Leikvöllurinn sjálfur átti að heita Múmínlundurinn en því síðar breytt í Ævintýraskógur. Hann tók fram að Skógræktarfélagið gæti enn haft samband varðandi tilskilin leyfi. Í færslu á Facebook-síðu Skógræktarfélagsins segir að þau hafi frá upphafi átt afar góð og innihaldsrík samskipti við rétthafa, framleiðendur og innflytjendur. „Í samvinnu við alla þessa aðila er þess dagana einmitt verið að undirbúa næsta áfanga Ævintýraskógarins sem lítur dagsins ljós í sumar,“ segir í færslunni. Þá er tekið fram í annarri færslu að öll leiktækin auk kastalans eru úr vörulínu leiktækjaframleiðanda sem á í samstarfi með rétthafanum Moomin Characters. Hins vegar sé Snorkstelpan og aðrar nafngiftir á svæðinu sem vísa í Múmín höfundarréttarvarið sem félagið virðir. Snorkstelpan snýr aftur í ljósi jákvæðs samstarfs Fjarlægja þurfti þó einn mun vegna höfundarréttar, en það var stytta sem börn í Listasmiðju bjuggu til af Snorkstelpunni sjálfri. Þau voru hvött til að búa til líkneskjur af frægum ævintýrapersónum til að hvetja til aukins bóklesturs ungmenna. „Borið hefur á að yngri gestir skógarins hafi spurt hvort mögulegt sé að Snorkstelpa eigi afturkvæmt á sinn gamla stað. Á dögunum viðruðum við í samtali við Kristínu vinkonu okkar á rétthafaskrifstofunni ytra þessa sömu spurningu og svarið var einfaldlega á þá leið að í ljósi jákvæðs samstarfs og greinilegs tilfinningalegs gildis fyrir börn og fjölskyldur á Akureyri samþykktu þau málaleitan,“ stendur í færslunni. Styttunni af Snorkstelpunni verður því aftur komið fyrir á sinn stað á árlegri jólaskemmtun á sunnudaginn. Henni verður svo komið fyrir á framtíðarstað í Ævintýraskóginum.
Akureyri Bókmenntir Skógrækt og landgræðsla Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík Sjá meira