Vöruskiptahalli 38 milljarðar 18. febrúar 2005 00:01
Hallinn á vöruskiptum við útlönd í fyrra nam tæpum 38 milljörðum króna. Það er rúmum 21 milljarði króna meiri halli en árið þar áður. Út voru fluttar vörur fyrir rösklega 202 milljarða, sem var aukning um rúma 22 milljarða eða rúm 12 prósent frá árinu áður. Andvirði innfluttra vara var röskir 240 milljarðar og var það aukning um röska 43 milljarða eða 22 prósent. Sjávarafurðir voru 60 prósent alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,5 prósentum meira en árið áður. Mesta verðmætaaukningin var í útflutningi á ferskum fiski en einnig í saltfiski og frystum flökum. Iðnaðarvörur voru 35 prósent útflutningsins og þar var mesta verðmætaaukningin í útflutningi á lyfjum, lækningavörum og áli. Aukning varð í flestum liðum innflutnings en þó mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru. Greiningardeildir bankanna spá viðvarandi vöruskiptahalla á næstu mánuðum og misserum og telja að fyrr en síðar fari það að veikja krónuna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Viðskipti innlent Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Viðskipti innlent Búi sig undir að berja í borðið Viðskipti innlent Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Samstarf Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Viðskipti innlent Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Viðskipti innlent Erfiður vetur framundan en íslensk fyrirtæki ráði við áskoranirnar Framúrskarandi fyrirtæki Bindur vonir við „plan B“ Viðskipti innlent Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Stöðva rekstur Vélfags Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Ráðinn aðstoðarsköpunarstjóri Hvíta hússins Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Lögleiða þurfi netspilun til að ná stjórn á ástandinu Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fundu „þjóðaröryggis-málma“ á Grænlandi Vélfag hafi ítrekað grafið undan eigin undanþágu Hallgrímur Örn og Bára Hlín til atNorth Vélfagi synjað um frekari undanþágur frá þvingunaraðgerðum Arion banki tilkynnir nýtt lánaframboð Bird skellt í lás Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Fóru með sigur af hólmi í Bretlandi Blása í lúðra vegna atvinnuleysis á Suðurnesjum Nýtt lánafyrirkomulag varanleg lausn til að losa um stífluna Vonar að stíflan á markaðnum muni brátt bresta Íslandsbanki opnar á verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum Segist ekki svindlari heldur vilja skrá sig í sögubækurnar Sjá meira