Heilbrigðisstéttir megi auglýsa 3. febrúar 2005 00:01
Lögð hefur verið fram tillaga á Alþingi um að auglýsingar lækna, tannlækna og annarra heilbrigðisstétta, sem og auglýsingar heilbrigðisstofnana, verði heimilaðar. Flutningsmaður tillögunnar er Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar. Nú er flestum heilbrigðisstéttum og –stofnunum óheimilt að auglýsa starfsemi sína. Ágúst Ólafur segir þannig komið í veg fyrir að almenningur geti fengið nauðsynlegar upplýsingar um heilbrigðisþjónustu og sjúklingar verði því að treysta á umtal, ímynd og orðróm þegar þeir velja sér heilbrigðisþjónustu. „Almenningur á oft fjölbreytilega valkosti milli lækna og heilbrigðisstofnana sem keppa um þjónustu og aðstöðu fyrir almenning þrátt fyrir að í flestum tilvikum sé hið opinbera sem greiðir fyrir þjónustuna. Enn ríkari ástæður eru fyrir því að afnema auglýsingabann hjá tannlæknum þar sem þeir hafa frjálsa gjaldskrá,“ segir í tilkynningu frá þingmanninum. Á sínum tíma var auglýsingabann talið nauðsynlegt vegna fámennis í landinu og kunningsskapar og talið halda uppi aga innan stéttarinnar að sögn Ágústs. Hann telur að þessi rök eigi ekki við í dag, hafi þau einhvern tímann átt við. Núverandi auglýsingabann sé sömuleiðis erfitt og flókið í framkvæmd. „Í nágrannaríkum má finna mun frjálslegri lagasetningu hvað varðar auglýsingar heilbrigðisstétta og -stofnana en það sem gildir hérlendis,“ segir Ágúst.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Strandveiðisjómaður lést Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Sjá meira