Hef ég lesið þetta áður? Guðmundur Magnússon skrifar 12. janúar 2005 00:01 Nei, kæri lesandi. Það er harla ólíklegt að þú hafir áður lesið það sem hér stendur. En það getur vel verið að þér finnist að þú kannist við myndina og fyrirsögnina og jafnvel textann. Tilfinningin fyrir því að hafa upplifað eitthvað, séð eitthvað, heyrt eða lesið áður en maður gerir það í reynd í fyrsta sinn er alþekkt. Hún hefur meira að segja eignast fínt fræðiheiti, franskt að uppruna déjà vu. En hvað er þetta og hvað býr að baki? Og hvað er átt við í fyrirsögn hér að ofan að gátan sé loksins ráðin? Byrjum á almennum fróðleikum um efnið. Sækjum hann í opnu alfræðibókina á netinu, Wikipediu, eða á vísindavef Hákólans. Greinin sem fér hér á eftir er eftir Jón Gunnar Þorsteinsson bókmenntafræðing og aðstoðarritstjóra Vísindavefsins. "Déjà vu er upprunalega franska og merkir bókstaflega "þegar séð". Í flestum sálfræðihandbókum er lítið sem ekkert fjallað um fyrirbærið og helst virðist vera byggt á bók Graham Reed, The Psychology of Anomalous Experience: A Cognitive Approach, Hutchinson University Library, London, 1972). Déjà vu nefnist það þegar okkur finnst við hafa upplifað eða séð eitthvað áður, en um leið er eins og upplifunin sé ný. Déjà vu truflar þess vegna veruleikaskynjunina, okkur finnst að skynjun á einhverju fyrirbæri eða aðstæðum sé bæði ný og gömul.Sumir flogaveikisjúklingar virðast upplifa déjà vu oftar en aðrir menn og stundum getur slíkt ástand varað í nokkrar klukkustundir eða sólarhringa. Hjá flestum öðrum varir þetta hins vegar aðeins í nokkrar sekúndur eða mínútur. Skýringar Reeds á déjà vu eru eftirfarandi: Þegar við upplifum einhverjar nýjar aðstæður eins og við höfum lent í þeim áður, erum við hugsanlega að upplifa sams konar tilfinningaleg viðbrögð við ólíkum aðstæðum. Það eru þess vegna tilfinningalegu viðbrögðin sem eru af sama toga en ekki endilega aðstæðurnar. En vegna endurupprifjunar á tilfinningunni er eins og skynjunin á umhverfinu sé hin sama. Hin skýringin á déjà vu er sú að þegar við upplifum eitthvað nýtt eins og það sé kunnuglegt sé það í raun og veru svo. Við höfum lent í sams konar aðstæðum áður en náum ekki að rifja þær nákvæmlega upp vegna þess að upplifunin er einhverra hluta vegna bæld niður, ef til vill vegna þess að hún tengist óþægilegum tilfinningum. Þess vegna finnst okkur að upplifunin sé bæði ný og kunnugleg. Sýnt hefur verið fram á að hægt sé að ná fram áhrifum déjà vu með dáleiðslu. Ef manni í dáleiðsluástandi er sýnd mynd sem hann er síðan beðinn um að gleyma, finnst honum myndin vera einkennilega kunnugleg þegar hann sér hana aftur eftir að hann hefur verið vakinn. Í heimsbókmenntunum eru til þekkt dæmi um eins konar déjà vu. Fyrsta bindi stórvirkisins Í leit að glötuðum tíma eftir franska rithöfundinn Marcel Proust (1871-1922) nefnist Leiðin til Swann. Þar er frægur kafli þar sem sem bragð af magdalenusmákökum veldur fyrst eins konar déjà vu og nær síðan að vekja upp horfinn heim í huga söguhetjunnar. Minningar æskunnar sem hafa glatast rifjast upp þegar söguhetjan bragðar á kökunum sem hann hafði borðað í æsku og lyktar- og bragðskynið eru þannig hornsteinar minnisins: "En þegar fortíðin er liðin undir lok með manni og mús standa lykt og bragð eftir, pastursminni en lífsseigari, loftkenndari, staðfastari, trúrri - um langa hríð halda þau áfram eins og sálir að rifja upp, bíða, vona, á rústum alls hins liðna, að bera uppi án þess að kikna, í allri sinni smæð, hina risavöxnu byggingu minnisins. (Þýð. Pétur Gunnarsson, Leiðin til Swann, bls. 61.) Ef við setjum þetta í samhengi við kenningar Reeds þá er útfærsla á Proust á déjà vu af seinni gerðinni, það er að segja ástandið vísar til raunverulegra minninga og atburða. Þekkt kenning gríska heimspekingsins Platons um endurminningu er af líkum toga og upprifjun Proust, nema hvað þar er því haldið fram að það sem við rifjum upp sé ekki nærri gleymdar minningar úr þessu lífi heldur úr öðru og fyrra lífi. Að lifa og læra verður þess vegna upprifjun á fyrra lífi. Kenning Platons um endurminningu nefnist á grísku anamnesis og er ein af rökum Sókratesar fyrir ódauðleika sálarinnar. Hægt er að lesa um hana í Síðustu dögum Sókratesar. Í lokin er rétt að minna á enn eina skáldlega kenningu um déjà vu. Í myndinni Fylkið (The Matrix, 1999) verður aðalpersónan Neó fyrir déjà vu þegar hann sér sama svarta köttinn tvisvar í röð með örstuttu millibili. Í sýndarheiminum sem Neó og félagar hans eru staddir í, er déjà vu vísbending um að þeir sem skapa heiminn séu að breyta einhverju. Það koma hnökrar á kerfið sem lýsa sér í því að eitthvað gerist aftur nákvæmlega eins og áður”. Svo mörg voru þau orð á vísindavefnum. Nógu er þetta fróðlegt. En einhverjir munu segja að hér vanti einhverjar skýringar handan viðurkenndra fræða og vísinda. Á sviði svokallaðra hjáfræða eða dulrænna viðfangsefna hafa menn fundið upp á margvíslegum útlistunum á déjà vu og líklega er hin vinsælasta sú að þetta sé ekki tóm tilfinning eða skynvilla heldur raunveruleiki sem skýra megi með því að sá sem fær tilfinninguna hafi raunverulega upplifað reynsluna áður, bara í öðru lífi, til dæmis á öðrum hnetti. Þótt þessi kenning eða einhver útgáfa hennar njóti ekki opinberar viðurkenningar er hún vissulega skemmtileg og góð dægradvöl. Eða þannig. En þá er komið að nýjustu fréttum. Samkvæmt rannsóknarritgerð sem birt var í desemberútgáfu tímaritsins Current Directions in Psychological Science (og hér má lesa í heild) hafa vísindindamenn nú komið með forvitnilega kenningu sem ef til vill ræður gátuna og hljóðar svo á frummálinu í örfáum orðum: "Déjà vu may result from (a) a brief change in normal neural transmission speed causing a slightly longer separation between identical messages received from two separate pathways,(b) a brief split in a continuous perceptual experience that is caused by distractions (external or internal) and gives the impression of two separate perceptual events, and (c) the activation of implicit familiarity for some portion (or all) of the present experience without an accompanying conscious recollection of the prior encounter. Procedures that involve degraded or occluded stimulus presentation, divided attention, subliminal mere exposure, and hypnosis may prove especially useful in elucidating this enigmatic cognitive illusion." Vísindamennirnir setja fyrirvara, enda er þeim kennt það í skólum: "Although a considerable literature concerning déjà vu exists, we are only on the threshold of a scientific exploration of the illusion". Með öðrum orðum er déjà vu að líkindum blekking sem rekja má til starfsemi heilans, taugaboða og skilningarvita. Komið getur fyrir að upplifun eða skynjun berist til heilans mishratt eftir tveimur leiðum og kalli fram þá ályktunarvillu hugans að um tvær mismunandi skynjanir í tíma og rúmi sé að ræða. Hvað finnst lesendum? Að þeir hafi lesið þetta áður?gm@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Magnússon Í brennidepli Mest lesið Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir Skoðun Svakaleg saga um ofbeldi á vinnustað Ævar Örn Jóhannsson Skoðun Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Eru vísindi „tabú“ í almannaumræðu? Loftslagsmál upplýst Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Belonging Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Nýtum kosningaréttinn Sigurður Kári Harðarson,Sólveig Jóhannesdóttir Larsen skrifar Skoðun Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson skrifar Skoðun Hin heillandi fortíðarþrá Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í rusli Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“ Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson skrifar Skoðun Unga fólkið heim aftur Adam Ingi Guðlaugsson skrifar Skoðun Er kominn tími til að leyfa milliakreinaakstur? Njáll Gunnlaugsson skrifar Skoðun Aukning starfsmanna Reykjavíkurborgar Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík - Hið skapandi hjarta Guðmundur Ingi Þorvaldsson skrifar Skoðun Það er gott í Kópavogi Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Blásið á bull V-listans og Miðflokksins Friðjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi og ábyrgð Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Umtalsverður hávaði undanskilinn aðgerðaráætlun um hávaðamengun Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Martin Swift skrifar Skoðun Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar
Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar
Skoðun Umtalsverður hávaði undanskilinn aðgerðaráætlun um hávaðamengun Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Martin Swift skrifar
Skoðun Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun