Siðferðið betra en í stjórnmálum 13. október 2005 15:20
Hagsmunaárekstrar eru algengir í íslensku viðskiptalífi að mati stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Siðferði í viðskiptum hefur þó batnað undanfarin ár og er betra en siðferðið í stjórnmálum. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Þröstur Olaf Sigurjónsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, gerði meðal stjórnenda fyrirtækja. 400 stjórnendum var sendur spurningalisti og svaraði ríflega þriðjungur. Sex af hverjum tíu telja að siðferði í viðskiptum hafi batnað undanfarin ár en fjórir af tíu eru því ósammála. Þá telja 57% að siðferði í viðskiptum hér á landi sé gott miðað við nágrannalönd okkar. Menn virðast mjög sammála þegar spurt er um hvort að hagsmunaárekstrar séu algengir í íslensku viðskiptalífi en 94% telja að svo sé. 88% segjast þekkja nokkur eða mörg dæmi um hagsmunaárekstra í viðskiptalífi hér á landi. Siðferði ber oft á góma í tengslum við stjórnmál og stjórnmálamenn og samkvæmt könnuninni telja 65% þeirra sem svöruðu að siðferði í viðskiptum væri betra en siðferðið í stjórnmálum. En hvað þýðir þetta og hvaða afleiðingar hefur slæmt viðskiptasiðferði? Samkvæmt þessari könnun telja 93% að slæmt viðskiptasiðferði komi í bakið á þeim sem það stunda síðar og mættu kannski einhverjir láta það sér að kenningu verða.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Atvinnulíf „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Atvinnulíf Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Viðskipti innlent Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Viðskipti innlent Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Viðskipti innlent Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Viðskipti innlent Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Viðskipti innlent Breytingar á stjórn Sýnar Viðskipti innlent Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Atvinnuleysi 7,1 prósent í febrúar Verðbólga eykst enn Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Lindex opnar þar sem Next var áður Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Norðurál getur keypt meiri orku af Landsvirkjun Magnús Örn til Fossa Sjá meira