Olivia Rodrigo á Íslandi Poppstjarnan Olivia Rodrigo kom til landsins í morgun eftir að hafa flogið með Icelandair frá Portland samkvæmt heimildum fréttastofu. Stjarnan gaf út plötuna you seem pretty sad for a girl so in love í síðasta mánuði og fer á umfangsmikið tónleikaferðalagi í haust. Lífið 17.7.2026 16:44
Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Heimsmeistaramótið í dansi stendur nú yfir í Dyflinni á Írlandi. Um risamót er að ræða. Keppendur þess eru á aldrinum sjö til tuttugu og fimm ára og eru þeir um ellefu þúsund í ár. Fjölmargir Íslendingar keppa á mótinu en fyrir hönd Íslands keppa meðal annars dansarar frá Danskompaníinu og Danskóla Birnu Björns. Mótið hófst 8. júní og því lýkur á morgun. Lífið 17.7.2026 14:29
Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Írska leikkonan Brenda Fricker er látin, 81 árs að aldri. Fricker hlaut Óskarsverðlaun árið 1989 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni My Left Foot. Bíó og sjónvarp 17.7.2026 13:42
Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið 17.7.2026 11:55
Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist 16.7.2026 23:40
Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees. Tónlist 16.7.2026 19:10
Stytta af Charlie Kirk á Times Square Höggmyndalistamaður hyggst koma fyrir gylltri málmstyttu af hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk á Times Square á eins árs ártíð hans þann 10. september næstkomandi. Kirk var skotinn til bana á fyrirlestri við Utah Valley-háskóla síðasta haust. Lífið 16.7.2026 11:52
Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Geislasverðið sem Logi Geimgengill sveiflaði í einu frægasta einvígi kvikmyndasögunnar gegn Svarthöfða í Stjörnustríði: Gagnárás keisaradæmisins seldist á uppboði fyrir 3,75 milljónir Bandaríkjadala, eða rétt rúmar 470 milljónir íslenskra króna. Bíó og sjónvarp 16.7.2026 10:26
„Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Þungarokkshljómsveitin Manowar snýr til Íslands í annað sinn í nóvember þessa árs og heldur tvenna tónleika í Hörpu, en sveitin er sem stendur á tónleikaferðalagi um heiminn. Uppselt var á tónleika Manowar í Reykjavík síðasta sumar en meðal þeirra sem lögðu leið sína í salinn Silfurberg var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands. Tónlist 16.7.2026 10:01
Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar „Ég er óendanlega þakklátur,“ segir rithöfundurinn Ragnar Jónasson sem verður fimmtugur næsta mánudag og tók forskot á afmælissæluna með glæsilegri veislu í Hvammsvík á föstudag. Tímamótin fara vel í Ragnar sem elskar veisluhöld og hefur nánast verið í starfi viðburðastjóra við undirbúninginn. Hann ætlar svo að fagna deginum sjálfum í ensku sveitinni með annarri veislu. Lífið 16.7.2026 07:02
Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Stærsti matarviðburður landsins, Götubitahátíðin, snýr aftur á sinn stað um helgina en líkt og síðustu ár fer hátíðin fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Á sunnudaginn verður svo tilkynnt hver stóð uppi sem sigurvegari árlegu keppninnar um Besta götubita Íslands. Matur 15.7.2026 18:01
Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Breska ofurfyrirsætan, leikkonan og tónlistarkonan Cara Delevingne prýðir nýja forsíðu sumarblaðs tímaritsins Playboy. Þar situr hún fyrir með sígarettu, í latex korsiletti og ber að neðan. Lífið 15.7.2026 14:03
„Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ „Við Halla tókum strax ákvörðun að við ætluðum að skapa okkar framtíð. Við höfum alltaf ákveðið hvernig við viljum gera hlutina en auðvitað koma frávik og það er alltaf eitthvað sem getur gerst,“ segir forsetamakinn, kokkurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Björn Skúlason. Honum er umhugað að skapa sér fallegt líf, hlustar á innsæið og hafði hugrekki til að taka U-beygju í lífinu þegar hann fann að það var nauðsynlegt. Lífið 15.7.2026 11:31
Haaland hunsaði Holland Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri. Lífið 15.7.2026 11:29
Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hrím, og grínistinn Ari Eldjárn hafa keypt sér 209 fermetra einbýlishús að Melabraut 48 á Seltjarnarnesi. Ásett verð á eignina var 169,9 milljónir en parið fékk hana á 165 milljónir. Lífið 15.7.2026 09:44
Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn „Okkur fannst mikilvægast að brúðkaupið væri í okkar anda og að gestum liði eins og þau væru hluti af veislunni. Þegar fólk var komið upp á borð að dansa áður en eftirrétturinn var borinn fram vissum við að markmiðinu hafði verið náð,“ segja hjónin Lára Hrafnsdóttir og Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson sem giftu sig með miklum stæl fyrr í sumar. Lífið 15.7.2026 07:01
Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Stórstjarnan Ariana Grande og Ricky Alvarez eru byrjuð aftur saman eftir að hafa stungið saman nefjum í nokkrar vikur. Þau voru áður par á árunum 2015 og 2016 en Alvarez var dansari (e. backup-dancer) Grande. Lífið 14.7.2026 20:59
Ljóðrænt hótel á Akureyri Íslensk ljóðlist er í hávegum höfð á nýju hóteli í miðbæ Akureyrar. Handskrifuð ljóð og bréf frá Davíði Stefánssyni prýða veggi hótelsins. Lífið 14.7.2026 20:00
David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast. Lífið 14.7.2026 16:50
„Drullið ykkur í burtu“ Kanadíska stórstjarnan Hudson Williams var að þrotum kominn í París á dögunum eftir að hafa verið eltur á röndum af mönnum sem vinna við það að selja eiginhandaráritanir. Einn mannanna tók Williams upp á myndband sem hefur farið sem eldur um sinu á Internetinu. Lífið 14.7.2026 16:03
Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Áhrifavaldarnir Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason hafa fest kaup á húsi sem var áður í eigu ömmu hennar og afa. Parið sem á von á öðru barni sínu saman seldi fyrr á árinu íbúð sína í Fossvoginum. Lífið 14.7.2026 15:00
Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Fyrirsætan og fegurðardrottningin Íris Freyja Salguero Kristínardóttir og athafnamaðurinn Egill Halldórsson eiga von á öðru barni. Fyrir eiga þau dótturina Mayu Sól og segja mikla gjöf að fá að stækka fjölskylduna. Lífið 14.7.2026 14:45
Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Rakel Sif Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ, hafa sett á sölu 77,6 fermetra íbúð sína að Nýlendugötu 22. Ásett verð er 79,9 milljónir. Lífið 14.7.2026 13:35
Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin lét sig ekki vanta á Kótilettuna árlegri fjölskyldu-, tónlistar-, og grillhátíð sem fram fór á Selfossi um helgina og var í beinni á laugardaginn. Lífið samstarf 14.7.2026 11:45
Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Hollywood-stjarnan Tom Cruise ætlar að bjarga jörðinni enn einu sinni á stóra skjánum, núna sem aldraði milljarðamæringurinn Digger Rockwell í hamfaramyndinni Digger í leikstjórn hins mexíkóska Alejandro González Iñárritu. Fyrsta stiklan fyrir myndina er nýútkomin. Bíó og sjónvarp 14.7.2026 11:26
Selja herrasetur í Þingholtunum Viðar Eggertsson leikstjóri og Sveinn Ísarr Kjartansson, yfirmatreiðslumaður hjá Seðlabanka Íslands, hafa sett á sölu þriggja hæða einbýlishús sitt að Laufásvegi 39 í Þingholtunum. Ásett verð hússins er 139,9 milljónir króna. Lífið 14.7.2026 10:45