Lífið

Lykla-Pétur fauk á haf út

Nanna Guðrún Sigurðardóttir skrifar
Gullna hliðið.
Gullna hliðið. RAX

Í október árið 2004 gekk óveður yfir landið og vindhraðinn fór upp í 62 metra á sekúndu. Í óveðrinu braust út eldur í útihúsi á bænum Knerri á Snæfellsnesi sem varð til þess að hlaða og fjárhús brunnu og rúmlega hundrað ær fórust, þar á meðal mörg lömb.

Það rauk ennþá úr rústum húsanna þegar RAX kom á vettvang.RAX

RAX fór ásamt blaðamanninum Örlygi Sigurjónssyni að bænum þar sem þeir fengu að mynda afleiðingar eldsvoðans. Mikil eyðilegging blasti við þeim en auk útihúsanna brunnu tæki og vinnuvélar.

Bóndinn á Knerri varð fyrir gríðarlegu tjóni í eldsvoðanum.RAX

Á leiðinni til og frá Knerri keyrðu RAX og Örlygur fram á hlið sem fékk þá til að halda að þar væri hlið til himna.

Sólin lýsti upp hliðið og gæddi það guðlegum ljóma.RAX

Söguna um gullna hliðið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: RAX Augnablik - Gullna Hliðið

Hér fyrir neðan má sjá fleiri sögur úr smiðju RAX:

Undraveröld íshellanna

Það leynast miklir töfrar í aldagömlum jökulís og RAX sér alltaf eitthvað nýtt þegar hann beinir myndavélinni inn í ísinn. Á sumum myndanna virðast andar forfeðranna reyna að ná sambandi við áhorfandann.

Klippa: RAX Augnablik - Undraveröld íshellanna

Stormur undir Eyjafjöllum

Árið 1993 stefndi djúp lægð að landi. Veðrið yrði verst undir Eyjafjöllum og RAX hélt rakleiðis þangað til þess að mynda veðurhaminn þegar að lægðin skylli á landinu.

Klippa: RAX Augnablik - Stormur undir Eyjafjöllum

Andarnir í ísjökunum

Þegar RAX fór til Grænlands í september 2024 myndaði hann tröllvaxna ísjaka í Ilulissat firði, þaðan sem ísjakinn sem grandaði Titanic kom. Á Grænlandi er líkt og náttúran fylgist með manni og ísjakarnir tóku á sig nýja mynd í þessu dulúðuga andrúmslofti.

Klippa: RAX Augnablik - Andarnir í ísjökunum
RAX





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.