Fréttir

Katla skelfur

Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju.

Innlent

Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna

Salma Björk Önnudóttir var í dag kjörin nýr formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins á aukaaðalfundi sem hreyfingin hélt í Hamraborg. Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun sem fjallar meðal annars um skólamál, hinsegin mál, útlendingamál og íslenska tungu.

Innlent

„Okkur finnst við vera undan­skilin“

Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Innlent

Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum

Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona.

Erlent

Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. 

Innlent

Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af

Lögreglan hefur áhyggjur af nýrri tískubylgju meðal hóps ungra ökumanna sem virðist vera að ryðja sér til rúms á samfélagsmiðlum. Athæfið birtist þannig að ökumenn taka sig upp á ógnarhraða og smella af sér bílbeltinu. 

Innlent

Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir

Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 

Innlent

Gul við­vörun eftir stóra skriðu­

Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum en skriður og grjóthrun hafa fallið á svæðinu síðustu daga. Mjög úrkomusamt hefur verið víða um land og er gert ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi. Stór skriða féll á Hnífsdalsveg á norðanverðum Vestfjörðum í gær.

Innlent

Illa brugðið en heill á húfi

Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. 

Innlent

Veittist að flug­stjóranum með öxi í til­raun til að fremja hryðju­verk

Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni.

Erlent

Keyrði inn í mann­fjölda norður af Sydney

Bifreið var ekið inn í mannfjölda norður af Sydney í Ástralíu á laugardag. Tíu slösuðust og þar af nokkur börn en hópurinn safnaðist saman á götu í borginni Newcastle til að hvetja ruðningsliðið Newcastle Knights áfram.

Erlent

Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið

Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig.

Veður

Sagðir undir­búa stórsókn gegn Hútum

Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum.

Erlent

Lýsa eftir Hall­dóri Inga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, en ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. 

Innlent

„Of margar sögur af vondri með­ferð“

Dómsmálaráðherra segir að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að lokað yrði á dvalarleyfi fyrir svokallaðar au pair frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. „Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref,“ segir hann meðal annars. 

Innlent

Heiða í veikinda­leyfi

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í tveggja mánaða veikindaleyfi frá störfum. 

Innlent

Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili

Tveir unglingar voru bundnir þannig að þeir voru ósjálfbjarga og skildir eftir annars vegar fyrir utan heimili og hins vegar í kjallara fjölbýlishúss. Atvikin áttu sér stað á sitthvorum staðnum í Reykjavík. Málin eru bæði á borði lögreglunnar.

Innlent

Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja

Héraðssaksóknari fer fram á sextán ára fangelsisvist yfir Georgios Ntentes sem er ákærður fyrir að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana í nóvember 2025. Aðalmeðferðinni lauk í dag. 

Innlent

Allir sau­tján frjálsir ferða sinna

Þeir tveir sem sátu eftir í gæsluvarðhaldi af þeim sautján sem voru upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sölu fíkniefna og peningaþvætti eru nú lausir og frjálsir ferða sinna. 

Innlent

„Við erum ó­þolin­móð“

Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans segir að engum dyrum sé lokað þó að formlegar viðræður við Reykjavíkurborg séu hafnar um nýja staðsetningu skólans. Verið sé að skoða fleiri en einn möguleika í austurhluta borgarinnar og það sé lykiláhersla af beggja hálfu að vinna málið hratt.

Innlent