Fréttir
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 334 ›
Röskva bar sigur úr býtum Röskva - samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands bar sigur úr býtum í kosningum til stúdentaráðs og háskólaráðs í gær. Röskva nær því meirihluta eftir tvö ár af Vöku í meirihluta. Innlent 27.3.2026 10:12
Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn Páskaeggjavertíðin er í hámarki um þessar mundir en alls eru framleidd á aðra milljón súkkulaðieggja fyrir súkkulaðiþyrsta landsmenn. Í verksmiðju Góu var framleiðsla á páskaeggjum fyrir starfsfólk Landspítalans í fullum gangi. Innlent 27.3.2026 10:10
Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Undirskrift Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, verður sett á eins dals seðla í Bandaríkjunum og mögulega fleiri seðla en það þykir enn óljóst. Verður hann fyrsti forseti Bandaríkjanna til að hljóta þann heiður en nafni Trumps hefur verið bætt á hina ýmsu hluti vestanhafs að undanförnu. Erlent 27.3.2026 09:36
Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Forseti Bandaríkjanna lýsti Sómölum sem „heimsku fólki“ sem stælu af Bandaríkjamönnum og kæmu frá „viðbjóðslegu“ landi þegar hann ræddi við fréttamenn í gær. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn hefur uppi rasísk gífuryrði um Sómali og land þeirra. Erlent 27.3.2026 08:39
Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Leikskólabarn strauk af leikskólanum Áshamri í Hafnarfirði og gekk sjálft heim til sín. Árdís Ármannsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að strax hafi verið gripið til úrbóta. Barnið hafi farið yfir lágar girðingar á lóðinni sem hafi verið til staðar vegna framkvæmda. Innlent 27.3.2026 08:34
Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Ung kona á Spáni fékk aðstoð við að deyja í gær, eftir langa baráttu fyrir dómstólum. Konan, Noelia Castillo, 25 ára, hafði fengið umsókn sína um dánaraðstoð samþykkta árið 2024 en málið hefur verið á bið síðan vegna andmæla föður hennar. Erlent 27.3.2026 08:32
Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Päivi Räsänen, þingmaður Kristilegra demókrata í Finnlandi, hefur verið sakfelld fyrir að halda því fram að samkynhneigð sé „þroskaröskun“. Hún hefur notið stuðnings bandarísku samtakanna Alliance Defending Freedom. Erlent 27.3.2026 07:49
Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Leiðtogafundur svonefndra Sameiginlegra viðbragðssveita (JEF) verður haldinn á Íslandi í fyrsta skipta á næsta ári. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, lagði boðið fram og þekktust leiðtogar JEF-ríkjanna það á fundi í Helsinki í gær. Innlent 27.3.2026 07:44
Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Lægðin heldur áfram að angra landsmenn í dag þegar hún ferðast suður með landinu á norðausturleið og veldur hvassviðri eða stormi um vestanvert landið. Hvassast verður á Vestfjörðum. Veður 27.3.2026 07:16
Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ný matvöruverslun frá Navy Exchange Service Command, NEX, hefur verið opnuð á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða svonefndan Micro Market-sölustað, sem var tekinn í notkun 10. mars og er ætlaður bandarískum hermönnum og öðru liði Atlantshafsbandalagsins á svæðinu. Innlent 27.3.2026 06:46
Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. Erlent 26.3.2026 23:52
Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Forsvarsmenn Klíníkurinnar telja það ekki hagkvæma lausn að eiga í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma. Þjónustan sé of frábrugðin starfsemi Klíníkurinnar og kalli á of mikla uppbyggingu hvað varðar aðbúnað og mannafla. Meðal annars þyrfti að gera miklar breytingar á húsnæði fyrirtækisins og þar að auki yrði um tiltölulega litla rekstrareiningu að ræða. Innlent 26.3.2026 23:23
Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Fimmtán ára stúlka hefur verið handtekinn í Svíþjóð en hún er grunuð um að hafa skotið tvo drengi til bana. Hún mun hafa skotið sautján ára dreng skammt frá Stokkhólmi á mánudaginn og í gær skaut hún fimmtán ára dreng í Malmö. Grunur leikur á um að hún hafi framið morðin fyrir Foxtrot-gengið alræmda. Erlent 26.3.2026 22:06
Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Yfir 1.500 flugvallarstarfsmenn víða á Kanaríeyjum boða verkföll í kringum páskana eftir að kjaraviðræður vinnuveitenda og stéttarfélaga sigldu í strand. Verkföll á Tenerife Sur-flugvelli, sem flogið er til frá Íslandi, eru fyrirhuguð 28. og 29. mars og 2.-6. apríl. Erlent 26.3.2026 21:21
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26.3.2026 21:21
„Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitarmann sem keyrt var utan í á Reykjanesbraut í dag vera bólginn og lemstraðan en ekki illa meiddan. Þá segir aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að það að fólk hafi hlustað á tilmæli hafi skipt sköpum fyrir störf viðbragðsaðila í dag. Innlent 26.3.2026 20:29
Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur undir með Donald Trump, forseta, um að bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu þurfi að gera meira þegar kemur að því að opna Hormússund fyrir umferð olíuflutningaskipa á nýjan leik. Rubio segir Bandaríkjamenn sífellt beðna um að styðja Úkraínu og hjálpa til í stríði sem sé á annarri heimsálfu. Þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda hafi Trump fengið neikvæð svör. Erlent 26.3.2026 19:05
Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið. Innlent 26.3.2026 18:44
Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn en maðurinn er kominn úr lífshættu. Við förum yfir málið í kvöldfréttum. Innlent 26.3.2026 18:00
Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Heilbrigðisráðuneytinu bárust sjö umsóknir um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Ráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Innlent 26.3.2026 16:59
Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu um slys sem varð fyrir ári síðan. Lítið barn lést í slysinu og eru meginorsakirnar taldar vera hálka á yfirborði vegarins og að barnabílstóllinn brotnaði við höggið. Innlent 26.3.2026 16:57
Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent. Innlent 26.3.2026 16:30
Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðar til blaðamannafundar til að kynna fjármálaáætlun. Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 26.3.2026 15:52
Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, kemur til landsins þann 15. apríl í tengslum við árlegt Velsældarþing í Reykjavík. Þar tekur hún ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þátt í samtali um leiðtoga í breyttum heimi í Veröld, húsi Vigdísar, en dagurinn er einmitt afmælisdagur Vigdísar Finnbogadóttur. Innlent 26.3.2026 15:19
Boðar til viðræðna við sex flokka Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, hefur boðið fulltrúum sex flokka til fyrstu umferðar stjórnarmyndunarviðræðna eftir þingkosningar sem voru haldnar í Danmörku á þriðjudag. Viðræðurnar eiga að hefjast á morgun. Erlent 26.3.2026 14:50
Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi, leiðir áfram lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á í dag þrjá af níu fulltrúum í bæjarstjórn Akraness. Samfylking á sömuleiðis þrjá og Framsókn einnig. Innlent 26.3.2026 14:17
Stúlkan er fundin Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er fundin heil á húfi. Innlent 26.3.2026 13:58
Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Alþjóðleg rannsókn sem gerð var í Sádi-Arabíu og íslenskir fræðimenn tóku þátt í bendir til að hægt sé að binda kolefni í berg á mun fleiri stöðum í heiminum en áður var talið gerlegt. Aðferðin sem var beitt dregur verulega úr vatnsþörf bindingarinnar. Innlent 26.3.2026 13:38
Neita að afhenda dóma lögreglumanna Héraðsdómur Reykjaness neitar að afhenda dóma í málum tveggja lögreglumanna, þrátt fyrir skýrar reglur um rétt almennings um að fá afhent afrit úr dómabókum. Aníta Rut Harðardóttir var sakfelld og dæmd til sektargreiðslu fyrir óheimilar uppflettingar í málaskrá lögreglu en hinn lögreglumaðurinn var sýknaður. Innlent 26.3.2026 13:37
Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina ætla að ná frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið. Á Alþingi í dag sagði hann að það hefði verið „nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun“ að lesa uppsagnarbréf sem honum var birt í auglýsingu í Morgunblaðinu. Innlent 26.3.2026 13:37