Fréttir

Landtökumenn börðu og rændu ljós­myndara Washington Post

Tugir ísraelskra landtökumanna brenndu ólífutré og réðust á Palestínumenn sem voru að safna ólífum. Þar að auki réðst hópur manna á bandarískan ljósmyndara á vegum Washington Post en þeir börðu hana og rændu. Mennirnir réðust einnig á palestínska samstarfsmenn hennar.

Erlent

Ekki á­stæða til að rýma bankann

Undanfarna daga hefur fyrirtækjum og stofnunum borist óljósar sprengjuhótanir erlendis frá, þar á meðal er Íslandsbanki. Bankinn lét lögregluna vita umsvifalaust og hefur unnið náið með henni að málinu.

Innlent

Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað

Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allt virðist mega ef rætt sé um BDSM.

Innlent

„At­kvæði gegn Kanada er hættu­leg blekking“

Mark Carney varaði samlanda sína við því í gær að Bandaríkin væru að reyna að sundra Kanada. Markmið þeirra væri að eiga Kanadamenn og bað hann fólk um að greiða atkvæði í atkvæðagreiðslum um mögulegan aðskilnað Alberta-fylkis frá öðrum í Kanada eins og framtíð ríkisins væri í húfi, því það væri nákvæmlega svo.

Erlent

Sjö ára dómur

Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokallaða. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. 

Innlent

Nýr for­seti ASÍ, um­deildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ fyrir rétt rúmri klukkustund. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæðum á móti 127 atkvæðum, Arnaldar Grétarssonar, mannfræðings. Georg tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin. Bjarki Sigurðsson fréttamaður fylgdist með í beinni útsendingu frá þingi og kemur með nýjustu tíðindi af ASÍ þingi í hádegisfréttum Bylgjunnar, en mikil spenna er einnig fyrir kosningu varaformanna síðar í dag. 

Innlent

Gul við­vörun gefin út fyrir landið allt

Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir á landinu öllu, en þær taka ýmist gildi á morgun laugardag eða á sunnudag. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi annað kvöld á suðvestan- og vestanverðu landinu. Gul viðvörun hefur svo verið gefin út fyrir landið allt seinni partinn á sunnudag.

Veður

„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingis­manna“

Ýmsir hafa lagt orð í belg á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Ákvörðunin er sögð áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu Viðreisnar á meðan einhverjir vilja meina að augljóst sé að Jón sé ekki hópíþróttamaður og að hann eigi eftir að bregðast ríkisstjórninni og sínum fyrrverandi flokki.

Innlent

Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót

Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla í nóvember og desember með greiðsluþátttöku ríkisins. Samkomulag hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd aðgerðanna, en sjúklingar þurfa að uppfylla skilyrði stofnunarinnar.

Innlent

Georg Páll er næsti for­seti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin.

Innlent

Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu

„Veðurstofan þarf að brjóta odd af oflæti sínu og fara að gefa staðbundnari litakvarðaðar viðvaranir. Í dag er þeim „smurt út“ yfir heil spásvæði. Í gær var þannig allt Suðurland á appelsínugulu vegna hávaðaroks og sviptivinda í Eyjum og undir Eyjafjöllum. Einu staðbundnu viðvaranirnar eru fyrir höfuðborgarsvæðið!“

Innlent

Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun.

Innlent

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur

Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.

Erlent

Á­rásar­maðurinn sex­tán ára

Sá sem skaut þrjú börn á grunnskólaaldri og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í gær var sextán ára. Hann var skotinn til bana af óbreyttum borgara.

Erlent

Tals­verð rigning næstu daga

Suðvestan átta til þrettán metrar á sekúndu og lítilsháttar skúrir en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti á bilinu fjögur til tíu stig.

Veður

Sögu­legur dómur fyrir náms­menn í Hæsta­rétti

Tryggingafélagið Vörður þarf að greiða konu á þrítugsaldri tæpar 6,75 milljónir króna vegna varanlegrar örorku eftir umferðarslys. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og töldu að ekki hefði verið sýnt fram á að konan væri komin nógu langt í námi til að miðað yrði við laun tanntækna í dag í stað lágmarkslauna við útreikning bóta. Athygli vekur að samkvæmt gildandi skaðabótalögum er miðað við lágmarkslaun eins og þau voru árið 1999.

Innlent

Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot

Einn var handtekinn af lögreglu fyrir hótanir og brot á vopnalagabrotum en greint er frá atvikinu í dagbók lögreglunnar. Einnig voru ökumenn sektaðir fyrir að nota farsíma við akstur og aka án þess að vera með próf.

Innlent

Nálgist neyðar­á­stand

Formaður Félags sjúkraþjálfara segir alvarlega stöðu vera uppi á Reykjalundi og stutt í að lýsa þurfi yfir neyðarástandi. Félagið greindi frá því á dögunum að fjöldi sjúkraþjálfara hefði hætt störfum og fjöldi starfandi verði líklega kominn úr 24 í þrettán eftir áramót.

Innlent

Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon

Minnst þrjú börn og einn fullorðinn féllu í skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Bend í Oregonríki í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn var skotinn til bana, að sögn lögreglu.

Erlent

Lentu aftur í ó­förum

„Sem betur fer vorum við ekki hérna í gær þegar þetta gekk á því að við hefðum líklega ekki lifað af. Ef við hefðum verið í rúminu eða í eldhúsinu þá hefðum við stórslasast.“ Þetta segir Ásta Gunna Kristjánsdóttir en hús fjölskyldunnar á Siglufirði stórskemmdist í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Þetta er í annað sinn sem náttúruöflin setja mark sitt á húsið.

Innlent

Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld

Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum atkvæða.

Innlent