Samgöngur

Fréttamynd

Lest í stað Borgarlínu?

Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum árum snúist að verulegu leyti um Borgarlínu. Það er skiljanlegt.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja borgarlest í stað borgarlínu

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vit­laust festir

Samgöngustofa minnir á mikilvægi þess að huga vel að börnum í bíl og að þau séu í stól við hæfi miðað við aldur. Ökumenn geta fengið allt að 30 þúsund króna sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl. 

Neytendur
Fréttamynd

Sam­þykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs

Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins.

Erlent
Fréttamynd

Samgönguráð: Fyrir landið allt eða eitt kjör­dæmi?

Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég er heppin að hafa ekki brotnað“

Helga Sigrún Sigurjónsdóttir telur sig heppna að ekki hafi farið verr þegar hún lenti í slysi á föstudaginn. Þá var hún á ferðinni á hjóli í Laugardalnum og varð fyrir því óláni að hjóla á mikilli ferð á rafhlaupahjól sem lá á hjólastígnum. Helga er óbrotin en tiltölulega illa farin og hefur verið rúmföst frá því á föstudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Reykja­vík er hvorki gjald­þrota né ofurþétt

Oft er sagt Það tekur stuttan tíma að segja lygar og lengri tíma að mæta þeim. Reykjavík er falleg borg. Hún er miklu fallegri en hún var þegar ég flutti til Reykjavíkur fyrir 15 árum Miðborgin er orðin ótrúlega nútímaleg, litrík og lifandi, og mannlífið hefur tekið miklum breytingum til hins betra.

Skoðun
Fréttamynd

Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

Innlent
Fréttamynd

Hjólar í borgina: Hafi engan á­huga á at­kvæðum hjólreiðafólks

Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga.

Innlent
Fréttamynd

Er verið að kynna Borgar­línuna sem strætó?

Um þessar mundir er fyrirhuguð Borgarlína mikið til umræðu. Gagnrýnendur verkefnisins skrifa hvern pistilinn á fætur öðrum og finna Borgarlínunni því til foráttu að vera allt of kostnaðarsöm og uppáþrengjandi fyrir of lítinn ávinning. Athyglisvert er hins vegar hversu sjaldan nokkur rök eru færð gegn grundvallarhugmyndinni sjálfri.

Skoðun
Fréttamynd

Borgar­stjórn vill að börn fái frítt í Strætó

Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum

Samgöngustofa hefur fengið tvö hundruð ábendingar vegna leigubílaaksturs frá því ný lög tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. Formaður tveggja félaga bifreiðastjóra segir ófremdarástand hafa ríkt á markaðnum síðan og kvartanirnar margfalt fleiri. Hann fagnar drögum að nýrri reglugerð.

Innlent
Fréttamynd

Svona mun Suður­lands­braut líta út

Tillaga að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut er nú komin í auglýsingu. Skipulagssvæðið nær utan um breytta götumynd Suðurlandsbrautar milli Skeiðarvogar og Lágmúla og hefur borgin birt myndir sem sýna hvernig gatan mun líta út eftir breytingarnar.

Innlent
Fréttamynd

Hvernig byggjum við upp há­gæða al­mennings­sam­göngur?

Hágæða almenningssamgöngur byggjast ekki á stærri og stífari kerfum, heldur á snjallvæðingu, sveigjanleika og aðlögun að ferðavenjum fólks. Í þróun samgangna á að fara frá stórum einingum yfir í minni og liprari lausnir þegar tæknin leyfir. Því minni og sveigjanlegri sem einingarnar eru, því betur er ferðalagið sniðið að þörfum farþegans í stað þess að farþeginn þurfi að laga sig að kerfinu.

Skoðun
Fréttamynd

Hjóla – og göngu­stígar í Reykja­vík: Metnaður á pappír, en brota­kennd fram­kvæmd

Reykjavíkurborg hefur um árabil talað fyrir auknum virkum samgöngum og sett sér metnaðarfull markmið um uppbyggingu hjóla - og göngustíga. Í stefnumótandi skjölum er áherslan skýr: öruggari, heilbrigðari og vistvænni borg. Þegar komið er út á stígana blasir hins vegar við önnur mynd, þar sem skortur er á samfellu, skýrri hönun og viðhaldi grefur undan trausti og notagildi kerfisins.

Skoðun
Fréttamynd

„Fyrsta ár ríkis­stjórnarinnar hefur mis­tekist“

Formaður Framsóknarflokksins segir það umhugsunarefni fyrir meirihlutann á Alþingi og ríkisstjórnina að verðbólga stefni að öllum líkindum yfir fimm prósent á næstu mánuðum og muni aukast. „Með öðrum orðum, fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist, henni hefur mistekist að ná niður verðbólgunni og vöxtunum.“

Innlent
Fréttamynd

Ráð­herra hafi gefið veiði­leyfi á sig

Samgönguáætlun til næstu fimm ára var á dagskrá þingsins í dag. Stjórnarandstaðan dró meðal annars í efa hversu raunhæf áætlunin er í ljósi efnahagslegs óstöðugleika. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir innviðaráðherra hafa veitt skotleyfi á sjálfan sig þegar hann sagðist ekki bundinn af ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar um gerð áætlunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Dæmi um kol­ranga á­ætlun Skattsins

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir mikilvægt að fólk skrái kílómetrastöðu ökutækja áður en fresturinn rennur út á morgun. Þá gæti verið sniðugt að fara yfir hvort skráningin sé alveg örugglega rétt. 

Neytendur
Fréttamynd

Verkútboð í vega­gerð aug­lýst eftir langt hlé

Vegagerðin hefur boðið út lagningu bundins slitlags á 7,4 kílómetra kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu. Þetta er fyrsta framkvæmdaútboð sem auglýst er í vegagerð frá því í júlí síðastliðið sumar, ef frá er talið lítið útboð í gerð hringtorgs í Garðabæ í september.

Innlent