Jarðskjálfti í Venesúela 2026

Fréttamynd

Reiðin magnast í Venesúela

Enn er leitað að fólki víðsvegar um Venesúela eftir tvo stóra jarðskjálfta sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. 1700 manns liggja í valnum svo vitað sé en enn eru margir enn undir rústum og eru margir Venesúelabúar nú reiðir stjórnvöldum fyrir seinagang við björgunaraðgerðir.

Erlent
Fréttamynd

Rúm­lega þrjá­tíu bjargað úr rústunum en tug­þúsunda enn saknað

Forseti Venesúela segir 33 hafa verið dregna á lífi upp úr rústum bygginga sem hrundu í tveimur stórum jarðskjálftum sem lögðu þjóðina í rúst. Um 800 byggingar eru taldar hafa hrunið í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. Enn er talið að margir Venesúelabúar séu fastir undir rústum þeirra.

Erlent
Fréttamynd

„Við sváfum ekkert, dauð­hræddir á refresh-takkanum alla helgina“

Eiginmaður poppstjörnunnar Páls Óskars, Edgar Antonio Luena Angarita, átti afmæli síðasta föstudag, þann 26. júní, en í stað þess að dagurinn snerist um ekkert nema gleði og hamingju fylgdust þeir Páll og Antonio með fréttum af fjölskyldu Antonio, sem býr í Venesúela. Þar hefur tala látinna hækkað sífellt síðustu sólarhringa í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku sem lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst.

Innlent
Fréttamynd

Tala látinna hækkar og gremja í­búa eykst

Tala látinna í Venesúela í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku hefur hækkað og er nú 1.430. Tilkynnt hefur verið um að að minnsta kosti 68.900 séu týnd nú þegar fjórir dagar eru liðnir frá því að eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst.

Erlent
Fréttamynd

Dagurinn í dag sé ör­laga­ríkur fyrir leit og björgun

Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag.

Erlent
Fréttamynd

Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað

Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag.

Erlent
Fréttamynd

„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“

Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna.

Erlent
Fréttamynd

Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum

Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands þekkir vel til skjálftasvæðana í Venesúela þar sem jörð skalf í gærkvöldi, en hann aðstoðaði kollega sinn við ritun greinar um misgengin í norðurhluta Venesúela árið 2021.

Innlent