Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar

Fréttamynd

„Beinin af Jónasi skipta and­skotans engu máli“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar.

Innlent
Fréttamynd

„Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“

Stefán Pálsson sagnfræðingur er einn þeirra sem láta „Stóra Beinamálið“ sig varða. Hann segist að sjálfsögðu ekki vilja bregðast aðdáendum sínum og býður upp á „hot take“ – eins og unga fólkið myndi segja – á Facebook-síðu sinni. Páll Valsson rithöfundur og útgefandi segir háðfuglana nú hafa efnivið að moða úr.

Innlent
Fréttamynd

Beri skylda að skila Dananum hugsan­lega á Þing­völlum

Kári Stefánsson, hluti af hópi fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, segir Íslendingum bera skylda að skila beinum einhvers löngu látins Dana, reynist hann liggja í gröf þjóðskáldsins á Þingvöllum.

Innlent
Fréttamynd

Um fá­rán­leika þess að raska grafarró þjóð­skáldsins

Það fór hrollur um marga landsmenn þegar fréttir bárust af því að hópur þjóðþekktra einstaklinga hefði lagt fram formlega beiðni til Þingvallanefndar um að fá að grafa upp jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum í þeim tilgangi að taka DNA-sýni úr beinunum, meðal annars til að skera úr um gamla þjóðsögu.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðargrafreitur sem ekki varð

Fyrir nokkru barst Þingvallanefnd erindi þar sem óskað var eftir leyfi til að taka sýni úr beinaleifum Jónasar Hallgrímssonar, sem hvílir í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, með DNA rannsókn. Eftir að jarðneskar leifar Jónasar voru fluttar til landsins komu upp efasemdir um að þær væru í raun af honum. Þingvallanefnd taldi að ekki væri hægt að heimila slíka rannsókn nema að undangengnum dómsúrskurði.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja eyða ó­vissunni um bein Jónasar

Hópur sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar segist vilja eyða óvissunni um bein hans. Þess vegna hafi hópurinn beðið um að fá að grafa beinaleifar hans upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu.

Innlent
Fréttamynd

Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hall­gríms­son

Hópur sem telur fræðafólk, fjölmiðlafólk, listafólk og kirkjunnar fólk hefur óskað eftir því við Þingvallanefnd að fá leyfi til að taka sýni úr beinaleifum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar sem þar hvílir í þjóðargrafreitnum.

Innlent