Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 34 ›
Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segist hafa miklar áhyggjur af yfirvofandi lokun Kaffistofu Samhjálpar og segist ætla að gera allt sem í hennar valdi stendur til að tryggja áframhaldandi rekstur kaffistofunnar. Innlent 4.6.2025 23:02
Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR Þorgerður Kristín Þráinsdóttir hefur verið skipuð forstjóri ÁTVR. Þorgerður var valin úr hópi nítján umsækjenda. Viðskipti innlent 4.6.2025 14:24
Inga endurvekur 25 metra regluna Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur gert breytingar á byggingarreglugerð sem fela í sér að bílastæði fyrir hreyfihamlaða megi ekki vera meira en 25 metrum frá aðalinngangi bygginga. Ákvæði þess efnis var fellt út árið 2016. Innlent 4.6.2025 14:12
„Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Berglind Hlín Baldursdóttir, bóndi í Miðhúsum, segir dóm Hæstaréttar um búvörulögin mikil vonbrigði. Bændasamtökin hafi ekki talað fyrir hagsmunum bænda. Bændur í Húnavatnssýslu búi nú við óvissu og viti ekki hvar þau geti slátrað í haust. Hún vonar að Alþingi samþykki breytingu á lögunum aftur til fyrra horfs. Innlent 4.6.2025 13:01
Ekki ólíklegt að þingið fari nokkra daga fram yfir Forsætisráðherra býst við að þingið fari nokkra daga fram yfir áætluð þinglok. Fjölmörg mál bíða afgreiðslu en stefnt er á að koma nokkrum stórum málum í gegn. Innlent 4.6.2025 12:31
„Hef mikinn skilning á því að Víðir hafi gert þetta“ Þingflokksformaður Viðreisnar sýnir því skilning að Víðir Reynisson, formaður Allsherjar- og menntamálanefndar, hafi farið fram á frestun brottvísunar Oscars Botanegra. Innlent 4.6.2025 12:19
Horft til tillagna um að minni fyrirtæki verði undanskyld jafnlaunavottun Litið verður til hagræðingatillagna starfshóps forsætisráðherra um að létt verði á jafnlaunavottun og að stærðarmörk fyrirtækja til jafnlaunavottunar verði hækkuð í fyrirhuguðu frumvarpi dómsmálaráðherra til breytinga á lögum jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana. Innlent 4.6.2025 12:04
„Það er rétt skilið“ Útlendingastofnun varaði Víði Reynisson, formann Allsherjar- og menntamálanefndar, við því að það yrði fordæmisgefandi ef stofunin frestaði brottvísun allra þeirra 19 sem voru á framkvæmdalista Ríkislögreglustjóra. Útlendingastofnun krafðist þess vegna skýrari svara frá þingmanninum. Innlent 4.6.2025 11:22
Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns sem verndarsvæði í byggð að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps Innlent 4.6.2025 07:36
Samþjöppunin hefur ekkert að gera með veiðigjöldin Þeir sem berjast gegn leiðréttingu veiðigjalda halda því gjarnan fram að leiðréttingin leiði til aukinnar samþjöppunar þar sem hún kippi rekstrarforsendum undan minni útgerðum. Það er öfugsnúið að þessi rök eru gjarnan borin fram af þeim sem vilja hækka lögbundið kvótaþak og þar með greiða fyrir enn meiri samþjöppun í sjávarútvegi. Skoðun 4.6.2025 07:12
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. Innlent 3.6.2025 21:03
„Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir afskipti Víðis Reynissonar, formanns Allsherjar- og menntmálanefndar, að máli Oscars Bocanegra vera með öllu óeðlileg. Hún vill endurskoða í heild sinni heimild Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar. Innlent 3.6.2025 14:47
Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Þingmaður Miðflokksins segist undrandi á framgöngu Víðis Reynissonar, sem hafði samband við Útlendingastofnun og sagði líklegt að Alþingi myndi veita hinum 17 ára Oscari Bocanegra ríkisborgararétt. Sigríður telur að Víðir hafi brotið trúnað við allsherjarnefnd, þar sem hann er formaður. Innlent 3.6.2025 14:27
Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist hafa tekið sjálfstæða ákvörðun um að hafa samband við Útlendingastofnun og láta vita af því að hinn sautján ára gamli Oscar fengi líklega ríkisborgararétt. Brottflutningur sem átti að fara fram í dag hafi hvorki verið góð meðferð á skattfé né einstaklingi í ljósi stöðunnar. Innlent 3.6.2025 12:20
Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fjöldi mála bíður nú þegar lokaspretturinn er hafinn á Alþingi. Fundað verður daglega í vikunni og alls eru sjö þingfundir eftir samkvæmt starfsáætlun. Þingflokksformaður Viðreisnar reiknar með að þinglokum seinki um nokkra daga en þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórn um vanvirðingu við þingið og þingsköp. Innlent 2.6.2025 21:17
Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Samfylkingin bætir við sig einu prósentustigi milli mánaða í þjóðarpúlsi Gallup, úr 29,4 prósentum í 30,7 prósent. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en flokkurinn stendur samkvæmt könnuninni í 5,5 prósentum. Innlent 2.6.2025 20:05
Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segir afsögn sína úr embætti ráðherra hafa verið erfiðustu ákvörðun lífs síns. Eftir afsögnina hafi hún ekki farið úr húsi dögum saman. Innlent 1.6.2025 12:28
Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Stimpingar brutust út á milli einstakra mótmælenda sem saman eru komnir í miðbæ Reykjavíkur í dag og tilheyra sitt hvorum hópnum. Tvenn mótmæli, önnur gegn stefnu sjórnvalda í útlendingamálum og hin gegn rasisma, voru boðuð í dag. Á samfélagsmiðlum var því hótað að mótmælin yrðu ekki friðsamleg. Innlent 31.5.2025 15:06
Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift. Innlent 31.5.2025 15:02
Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins segir fullyrðingar Viðskiptablaðsins og Samstöðvarinnar um að Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fyrrverandi barnamálaráðherra, ætli aldrei framar að ræða við fréttastofu Rúv vera rangar. Hún hafi neitað Rúv um viðtal þegar hún sneri aftur á Alþingi. Innlent 31.5.2025 12:47
„Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ Lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins varar við öllum hugmyndum um að grípa til sjaldgæfs ákvæðis sem heimilar takmörkun á ræðutíma þingmanna. Hugmyndir um að takmarka ræðutíma til að koma í veg fyrir mögulegt málþóf hafa verið viðraðar í fjölmiðlum. Atvinnuvegaráðherra telur ekki tímabært að ræða hvort gripið verði til þessa ráðs, en útilokar það ekki. Innlent 30.5.2025 13:28
„Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir í viðtali við Bítið á Bylgjunni að nýtt strandveiðifrumvarp sem Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, lagði fram á Alþingi í gær muni búa til ný vandamál: fleiri báta á strandveiðum og óseðjandi kerfi. Innlent 30.5.2025 13:02
Ætla ekki að minnka leyfilegan dagsafla Sigurjón Þórðarson segir að ríkisstjórnin ætli ekki að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð á strandveiðum. Slíkar hugmyndir hafi verið viðraðar í ráðuneytinu en ríkisstjórnin hafi verið sammála um að gera það alls ekki. Innlent 29.5.2025 17:36
„Arfavitlaus lausn“ að minnka aflann í hverri veiðiferð Formaður Strandveiðifélags Íslands segir að það væri „algjör hörmung“ að minnka leyfilegan heildarafla í hverri veiðiferð á strandveiðum. Hann fagnar bráðabirgðafrumvarpi atvinnuvegaráðherra sem ætlað er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar, en furðar sig á sumum hugmyndum sem viðraðar eru í greinargerð frumvarpsins. Innlent 29.5.2025 17:13
Segir ráðgjöf Hafró kippt úr sambandi og „gúmmítékki“ sendur á næstu ríkisstjórn Þingmaður Miðflokksins segir frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á lögum um strandveiðar til bráðabirgða vera með ólíkindum. Nái málið óbreytt fram að ganga verði ráðagjöf Hafrannsóknarstofnunar kippt úr sambandi með hætti sem ekki hafi áður sést. Þessu segist ráðherra ósammála og ítrekar að um ákvæði til bráðabirgða sé að ræða, annað frumvarp um strandveiðar sé væntanlegt í haust. Innlent 29.5.2025 13:55
Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um strandveiðar sem ætlað er að tryggja 48 daga veiðitímabil í sumar. Í greinargerð frumvarpsins segir að mögulega þurfi að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð, til að unnt sé að tryggja 48 daga tímabil. Innlent 29.5.2025 11:22
Ísland verði að hafa skoðun á vörnum NATO við landið Forsætisráðherra segir Atlantshafsbandalagið þurfa að beina sjónum sínum í auknum mæli til Norðurslóða, þangað sem alþjóðleg spenna er að færast. Ísland þurfi að byggja upp innviði, á borð við flugvelli og hafnir, til að leggja sitt af mörkum til bandalagsins. Innlent 28.5.2025 12:16
„Vestfirska efnahagsævintýrið“ í hættu verði veiðigjöldin hækkuð Guðmundur Fertram, stofnandi og forstjóri Kerecis, hefur miklar áhyggjur af því að hærri veiðigjöld muni hafa slæm áhrif á efnahag Vestfjarða. Það hafi verið mikill uppgangur, nýsköpun og fólksfjölgun en líklegt sé að sjávarútvegsfyrirtækin minnki fjárfestingar sínar hækki veiðigjöldin eins mikið og stjórnvöld fari fram á. Innlent 28.5.2025 08:56
Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Fjármálaráðuneytið hefur birt lista yfir alla kaupendur í útboði á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrr í mánuðinum. Sjóðurinn Alpha hlutabréf var meðal þeirra sem mest keyptu í útboðinu, eða fyrir 192 milljónir króna. Alpha hlutabréf ef sérhæfður sjóður í stýringu Íslandssjóða, sem eru í eigu Íslandsbanka sjálfs. Mest keypti Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fyrir milljarð króna. 1.529 einstaklingar keyptu fyrir tuttugu milljónir króna. Viðskipti innlent 27.5.2025 16:26
Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands, kemur til Íslands á fimmtudag í stutta vinnuheimsókn ásamt sendinefnd. Hann mun funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Innlent 27.5.2025 13:09