Aðalsteinn Leifsson

Fréttamynd

Til­tekt í Reykja­vík

Ég hef tekið þátt í mörgum verkefnum snúa að tiltekt í rekstri stofnana eða fyrirtækja. Framlag mitt til slíkra verkefna hefur verið þekking á samningagerð og að leiða fólk með ólík sjónarmið og hagsmuni saman. Þátttaka í faglegri stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sem stýrði fyrirtækinu frá gríðarlegum rekstrarvanda eftir efnhagshrunið kenndi mér margt, bæði vegna þess mikla vanda sem OR var í og vegna gefandi samstarfs við frábært fólk hjá fyrirtækinu. Endurreisn OR veitir dýrmætan lærdóm sem nýtist vel fyrir rekstur Reykjavíkurborgar og til að útskýra hvað ég á við þegar ég tala um tiltekt í rekstri borgarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Hlustum á hvert annað og breytum þessu

Ég hef kennt samningatækni í meistaranámi í stjórnun í Háskólanum í Reykjavík í meira en áratug. Góð samningatækni gengur út á það að hlusta og skilja og leita að lausnum sem þjóna hagsmunum allra.

Skoðun
Fréttamynd

Breytum þessari sér­hags­muna­gæslu

Lög sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og VG keyrði í gegnum Alþingi í vor til að gefa afurðastöðvum, sem jafnframt eru stórtækir innflytjendur á kjötvöru, undanþágu frá samkeppnislögum er skýrt dæmi um það þegar sérhagsmunir þeirra sem hafa pólitísk ítök eru teknir fram fyrir hagsmuni almennings og eðlilegar leikreglur heilbrigðs atvinnulífs eru teknar úr sambandi.

Skoðun
Fréttamynd

Ramm­ís­lenskt

Hann vaknar við vekjaraklukkuna, ómissandi tæki sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í Frakklandi undir lok 19. aldar, sveiflar af sér dúnsænginni, sem á rætur í Kína um 3 þúsund f.kr. og fékk almenna útbreiðslu í Noregi fyrir um þúsund árum, og stígur upp úr rúminu, sem er framleitt í Svíþjóð en kom fyrst fram í S-Afríku fyrir um 77 þúsund árum og var algeng í núverandi mynd hjá Forn-Egyptum.

Skoðun
Fréttamynd

300 milljónir á dag

Spjallið við eldhúsborðið ætti að vera um sumarfrí og framtíðaráform fremur en vexti og hallann á heimilisbókhaldinu. Eitt mikilvægt framlag ríkisins í baráttunni við verðbólguna er að hafa jafnvægi í ríkisfjármálum. Hvernig hefur það gengið hjá ríkisstjórn síðustu sjö ára?

Skoðun
Fréttamynd

Eftir­sótt er­lend fjár­festing

Ríki um allan heim keppast við að laða til sín erlenda fjárfestingu með markvissum hætti, þar sem ríkur skilningur er á því að slík fjárfesting bætir lífskjör. Þörfin fyrir samstarf við erlenda aðila er sérstaklega mikil í smáum hagkerfum, eins og á Íslandi þar sem atvinnulíf er fremur einhæft og vægi utanríkisviðskipta mikið. Ástæðan er sú að erlend fjárfesting skapar ekki einungis störf heldur getur hún einnig aukið fjölbreytni í atvinnulífi og utanríkisverslun, bætt markaðsaðgang, ýtt undir samkeppni og fært nýja þekkingu inn í atvinnulífið. Erlend fjárfesting hefur líklega aldrei verið mikilvægari fyrir Ísland en einmitt nú eftir efnahagshrun þegar fjárfestingar eru í sögulegu lágmarki og þörf er á að auka fjölbreytni í atvinnulífi og draga úr ófyrirsjáanlegum sveiflum í verðmæti útflutnings.

Skoðun