Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Lando Norris, ökumaður McLaren, gagnrýndi Franco Colapinto, ökumann Alpine, harðlega eftir kappaksturinn í Aserbaísjan. Norris fékk mikla gagnrýni fyrir hegðun sína og hefur hann beðið Colapinto afsökunar bæði persónulega og á samfélagsmiðlum. Formúla 1 1.10.2026 23:16
Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Esteban Ocon er á förum frá liði sínu Haas í Formúlu 1 þar sem samningur hans við liðið gildir aðeins út tímabilið. Það er möguleiki á að þetta verði síðasta tímabil Ocon í Formúlu 1. Formúla 1 30.9.2026 22:02
Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lando Norris, ökuþór McLaren, hefur beðið kollega sinn í mótaröðinni afsökunar eftir ummæli sem hann lét falla eftir árekstur í keppni mótaraðarinnar í Bakú um nýliðna helgi. Formúla 1 29.9.2026 07:31
Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ítalinn Kimi Antonelli, ökuþór Formúlu 1 liðs Mercedes, er að stinga af í baráttunni um heimsmeistaratitilinn í mótaröðinni. Kimi vann fyrsta kappaksturinn á nýrri braut í Madríd í dag. Formúla 1 13. september 2026 14:46
Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, lætur sér fátt um finnast þó að sófasérfræðingar segi að hann hafi rangt fyrir sér. Liðið ákvað að gefa Kimi Antonelli ný dekk en ekki liðsfélaga hans, George Russell. Formúla 1 12. september 2026 23:18
Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lando Norris, ökuþór McLaren mun ræsa fremstur í kappakstri mótaraðarinnar í Madríd á morgun, þeim fyrsta á þessari braut. Formúla 1 12. september 2026 15:10
Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Formúla 1 keppir á glænýrri kappakstursbraut í Madríd um helgina þegar spænski kappaksturinn fer fram. George Russell, ökumaður Mercedes, var hraðastur á fyrstu æfingum og segir brautina vera erfiðari heldur en brautina í Mónakó. Formúla 1 11. september 2026 15:01
Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 snýr aftur til Madridar eftir 45 ára fjarveru og mun kappaksturinn fara fram á glænýrri kappakstursbraut. Williams ætlar að fagna því með vitnun í gamlan bíl þeirra en sá bíll var með umdeilanlegan styrktaraðila. Formúla 1 9. september 2026 07:29
Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Charles Leclerc, ökuþór Formúlu 1 liðs Ferrari, segist laskaður á bæði líkama og sál eftir erfiða keppnishelgi á heimavelli Ferrari þar sem að Leclerc missti stjórn á bíl sínum á miklum hraða og skall á öryggisvegg. Formúla 1 8. september 2026 23:01
Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst. Formúla 1 8. september 2026 08:01
Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Bernie Ecclestone, fyrrverandi stjóri Formúlu 1 mótaraðarinnar, þvertekur fyrir þær sögusagnir að hafa verið handtekinn með haglabyssu í fórum sínum á flugvelli í Portúgal. Formúla 1 8. september 2026 07:02
Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel komst við er hann ræddi Michael Schumacher eftir að hafa ekið sögufrægum bíl Ferrari sem Þjóðverjinn gerði magnaða hluti með tímabilið 2002 í mótaröðinni. Formúla 1 7. september 2026 19:50
Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Ferrari átti ekki góðan kappakstur á heimavelli liðsins á Ítalíu um helgina en liðið fékk aðeins átta stig. Ökumennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton slá á sögusagnir um að samband þeirra sé orðið þungt. Formúla 1 7. september 2026 11:30
Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Kimi Antonelli vann ítalska kappaksturinn í Monza eftir magnaðan akstur þar sem Mercedes-maðurinn fór alla leið úr 19. sæti á rásmarkinu og upp í sigur. Formúla 1 6. september 2026 15:14
Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Pierre Gasly hefur Monza-kappaksturinn á Ítalíu á morgun fremstur. Þessi ökuþór Alpine komst á ráspólinn á ögurstundu, og það í fyrsta sinn á ferlinum. Formúla 1 5. september 2026 15:22
Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza. Formúla 1 4. september 2026 17:16
Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Isack Hadjar fær aftur þriðja sætið í Mónakó eftir að áfrýjunardómstóll Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins hafnaði áfrýjun Alpine. Pierre Gasly var verðlaunað þriðja sæti kappakstursins eftir að Alpine áfrýjaði refsingum sem hann fékk. Formúla 1 4. september 2026 13:30
Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Um helgina fer fram ítalski kappaksturinn í Formúlu 1 og mun hann vera þýðingarmikill fyrir Lewis Hamilton, ökumann Ferrari. Með sigri bætir hann met Michaels Schumacher sem sigursælasti ökumaður brautarinnar. Formúla 1 4. september 2026 10:32
Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Formúla 1 3. september 2026 16:30
Lando Norris stofnar sitt eigið lið Lando Norris hefur búið til sitt eigið lið fyrir unga ökumenn sem á að gefa þeim greiðari leið í Formúlu 1. Formúla 1 2. september 2026 21:33
Hadjar frá í aðra keppni Isack Hadjar verður ekki með Red Bull um helgina í ítalska kappakstrinum en hann er ekki enn búinn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í sumarfríinu í Formúlu 1. Liam Lawson verður þá áfram hjá Red Bull um helgina og Yuki Tsunoda fær að spreyta sig í annarri keppni. Formúla 1 2. september 2026 19:30
Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Lando Norris hefur framlengt samning sinn hjá McLaren út árið 2030. Honum fannst ákvörðunin um að framlengja ekki erfið. Formúla 1 29. ágúst 2026 12:02
Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Formúlu 1 lið Ferrari mun heiðra goðsögnina Michael Schumacher á heimavelli á Monza eftir rúma viku þegar að keppnishelgi mótaraðarinnar fer þar fram. Formúla 1 28. ágúst 2026 14:17
Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Lewis Hamilton, sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn og liðsmaður Ferrari, sér eftir ummælum sem hann lét falla í samskiptum við lið sitt og í viðtölum eftir erfiða keppni í Hollandi um síðastliðna helgi. Formúla 1 25. ágúst 2026 11:30