Fótbolti

Ronaldo á förum frá lands­liðinu

Andri Broddason skrifar
Vangaveltur ríkja hvort að Cristiano Ronaldo hafi spilað sinn síðasta leik fyrir portúgalska landsliðið.
Vangaveltur ríkja hvort að Cristiano Ronaldo hafi spilað sinn síðasta leik fyrir portúgalska landsliðið. Gualter Fatia/Getty Images

Cristiano Ronaldo er á förum frá æfingabúðum portúgalska landsliðsins og mun að öllum líkindum ekki leika meira með liðinu í þessum landsleikjaglugga. Hann tók neyðarfund með forseta portúgalska knattspyrnusambandsins og þjálfara liðsins fyrr í dag.

Spænski miðillinn Marca greinir frá því að Ronaldo sé á leið frá Danmörku þar sem Portúgal átti að mæta danska landsliðinu í A-deild Þjóðadeildarinnar. Ronaldo hefur ekki verið sáttur með krísufundinn sem hann var á með Jorge Jesus, landsliðsþjálfara Portúgals, en hann sagði að ekkert vandamál væri hjá leikmanninum. Það hringdi viðvörunarbjöllum þegar Pedro Proenca, forseti portúgalska knattspyrnusambandsins, sat fundinn einnig.

Fyrr í dag sagði Jesus að Ronaldo myndi æfa í dag en svo virðist ekki þar sem hann sást fara frá hóteli liðsins í svarta bifreið sem ók honum upp á flugvöll.

Ronaldo fór ekki á æfingu með þeim leikmönnum sem voru á bekknum gegn Noregi heldur fór hann frekar í ræktina og tók æfingu sjálfur. Samkvæmt portúgölskum miðlum hefur hann ekki verið sáttur við að hafa setið á bekknum allan leikinn gegn Noregi. Þetta er í fyrsta sinn í 18 ár sem hann kemur ekki við sögu í leik portúgalska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×