Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar fara fram í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu dagana 6. til 22. febrúar 2026.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Krist­rún bætti sig um þrettán sæti

Kristrún Guðnadóttir átti flottan fyrri keppnisdag á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í sprettgöngu. Svíar sýndu hins vegar yfirburði sína í undankeppninni.

Sport
Fréttamynd

For­setinn telur íþrótta­fólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu

For­seti Alþjóða skíða- og snjóbretta­sam­bandsins er á því að ákvörðun um þátt­töku á mótum eins og Vetrarólympíu­leikunum, þegar meiðsli hafi gert vart um sig í að­draganda móts, eigi að liggja hjá íþrótta­fólkinu sjálfu. Mikil um­ræða hefur sprottið upp eftir mál Linds­ey Vonn sem einnig er hægt að tengja við mál skíða­konunnar Hólm­fríðar Dóru Frið­geirs­dóttur hér heima.

Sport
Fréttamynd

Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“

Áhorfendur sem bauluðu á varaforseta Bandaríkjanna á opnunarhátíð vetrarólympíuleikanna í Mílanó í síðustu viku gerðu það til að sýna „evrópskt stolt“, að mati utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ástæðan sé ítrekaðar skammir Vance í garð Evrópu að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Stökk sem var bannað í hálfa öld

Bandaríski listskautaprinsinn Ilia Malinin er þegar komin með sín fyrstu Ólympíugullverðlaun um hálsinn. Þar hjálpaði til hve vel honum tókst að gera stökk sem þótti of hættulegt og var bannað í 50 ár.

Sport
Fréttamynd

Lindsey Vonn fót­brotnaði við fallið

Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn hefur gengist undir aðgerð vegna fótbrots á vinstri fæti eftir að hafa fallið illa í brunkeppni kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Cortina í dag.

Sport
Fréttamynd

Sá elsti í sögunni reif sig úr að ofan

Hinn fertugi Benjamin Karl varð elsti gullverðlaunahafi í snjóbrettakeppni á Vetrarólympíuleikunum og fagnaði innilega, með því að sýna öllum áhorfendum hvað hann er í góðu formi.

Sport