Umferðaröryggi
1 2 3 4 5 6 … 40 ›
Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Strætisvagni númer 11 var í morgun ekið utan í rútu Kynnisferða sem var stopp á Snorrabraut. Strætisvagninn er einnig í eigu Kynnisferða. Innlent 23.9.2026 09:48
Ekki sé verið að normalísera hraða: „Beina áhættuhegðun úr umferðinni“ Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, vill taka á ofsaakstri í umferðinni með því að nýta akstursíþróttir sem forvörn gegn slíkri áhættuhegðun. Með því sé ekki verið að normalísera hraðakstur. Sport 23.9.2026 09:30
Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Ungur drengur á Patreksfirði tvíbrotnaði á höfuðkúpu og hlaut tvær innvortis blæðingar eftir að hafa fallið á rafmagnshlaupahjóli á laugardag. Stjúpmóðir hans þakkar fyrir það að hann hafi verið með hjálm og biðlar til foreldra, og raunar samfélagsins alls, að brýna fyrir börnum að nota hjálm. Innlent 22.9.2026 23:01
Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Mikið áhyggjumál er að börn allt niður í ellefu ára bruni um á allt að hundrað kílómetra hraða um götur og holt og hæðir víða á höfuðborgarsvæðinu að mati lögreglunnar. Börnum á rafmagnskrossurum bregður oftar fyrir en áður sem sé foreldravandamál að mati aðstoðaryfirlögregluþjóns umferðardeildar. Innlent 21.9.2026 11:59
Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara, ekki með skráningarnúmer. Því mátti hann ekki aka á akbraut. Lögregla stöðvaði akstur hans en hann var ekki með aldur til að vera í umferðinni. Foreldrar komu og sóttu hann á vettvang. Innlent 21.9.2026 06:23
Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Sífellt fleiri ungmenni viðurkenna ölvunarakstur í viðhorfskönnun Samgöngustofu og hlutfall þeirra sem segjast hafa ekið eftir að hafa fengið sér fleiri en einn drykk nálgast sögulegt hámark. Sérfræðingur segir þróunina áhyggjuefni og telur þörf á átaki. Innlent 18.9.2026 14:00
Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna. Innlent 16.9.2026 17:44
Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavík segir tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar. Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa síðustu vikur innleitt nýtt ljósastýringakerfi, rauntímastýringu umferðarljósa, á Hringbraut. Innlent 16.9.2026 06:47
Vara við hvössum vindum í nótt Ökumenn eru varaðir við hvössum vindum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og við Eyjafjöll í nótt. Von er á 35 m/s vindhviðum fram til hádegis á morgun. Veður 15.9.2026 10:23
Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. Innlent 14.9.2026 17:41
Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Haraldur Már Haraldsson lenti í alvarlegu bílslysi 18. febrúar árið 2008 á Akranesi. Besti vinur hans lést í slysinu. Hann kenndi sjálfum sér um lengi en segist á betri stað í dag. Haraldur hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar áður en það skilur eftir athugasemdir um alvarleg slys og fólkið sem verður fyrir áhrifum af því. Innlent 14.9.2026 09:34
Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Hreinsa þurfti grjót af veginum um Kambaskriður austur af Breiðdalsvík í morgun. Íbúar hafa lýst yfir áhyggjum af veginum sem börnum er ekið eftir til og frá skóla á hverjum degi. Innlent 11.9.2026 11:30
Óvirk umferðarljós valda töfum Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir. Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar. Innlent 3.9.2026 13:46
Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Tæplega nítján ára stúlka sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags var frá Írlandi en búsett hér á landi þar sem hún undi hag sínum vel. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða áður en slysið varð. Innlent 2.9.2026 11:35
Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari. Innlent 2.9.2026 07:01
Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við vitni vegna banaslyssins á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust. Önnur stúlkan var nemandi í Menntaskólanum við Sund og í gærkvöldi fór fram kyrrðarstund í Langholtskirkju fyrir nemendur. Innlent 1.9.2026 11:32
„Engin orð ná utan um slíkan missi“ Halla Tómasdóttir forseti vottar aðstandendum ungmennanna sem létust í umferðarslysi við Krýsuvíkurveg í nótt samúð sína. Guðrún Karls Helgudóttir biskup biður fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. Innlent 31.8.2026 23:31
Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins. Innlent 31.8.2026 12:42
Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna. Innlent 30.8.2026 17:27
4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Skólabyrjun er stórt skref í lífi barna og fjölskyldna þeirra. Í haust hefja 4.677 börn grunnskólagöngu, 241 fleiri en í fyrra. Börnin eru að stíga sín fyrstu skref í því að ferðast sjálfstætt til og frá skóla; gangandi, hjólandi eða með öðrum hætti. Skoðun 27.8.2026 07:21
Stútur „með allt í skrúfunni“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og nótt, en verkefnin voru einkum tengd eftirliti með ökumönnum á bílum og bifhjólum sem ýmist óku of hratt, voru í símanum undir stýri, voru án ökuréttinda, fóru yfir á rauðu, eða voru undir áhrifum löglegra eða ólöglegra vímuefna. Innlent 26.8.2026 07:26
Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Þúsundir skólakrakka snúa aftur í skólann í þessari viku um land allt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aukið umferðareftirlit sitt í kringum grunnskóla að sögn varðstjóra sem segir umferðina hafa þyngst mjög, enda skólastarf hafið á öllum skólastigum. Innlent 25.8.2026 12:01
Kvíðir vetrinum framundan Djúpar rákir í malbiki vega víða á landinu eru stórhættulegar, að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segist kvíða vetrinum sem framundan er og skorar á stjórnmálamenn að bregðast við vandanum. Innlent 24.8.2026 22:00
Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði. Innlent 23.8.2026 19:05
Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir. Innlent 21.8.2026 21:01
Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október. Innlent 20.8.2026 15:01
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. Innlent 15.8.2026 20:00
Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Umferð um Flókalund á Vestfjörðum var 430 prósentum meiri en vanalega. Á sama tíma jókst umferð aðeins um 1,5 prósent á Strandarheiði og var minni en á venjulegum degi við Gauksmýri. Töluverð umferð var á Vesturlandi og Vestfjörðum í gær vegna almyrkva síðdegis. Innlent 13.8.2026 15:32
Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Lögreglan á Vestfjörðum segir að um hádegisbil megi búast við því að hámarksfjölda ökutækja verði náð á Bjargtöngum og Rauðasandi. Áfram er nóg af stæðum á Breiðavík og líkur á að svo verði fram á daginn samkvæmt tilkynningu. Innlent 12.8.2026 10:43
Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi. Innlent 11.8.2026 20:56