Leitar til Harry Potter gegn galdraskák Grindvíkinga „Þetta er það sem maður hefur beðið eftir frá því að undirbúningur hófst um mitt síðasta sumar. Eftirvæntingin er að sjálfsögðu mikil,“ segir Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, fyrir leik liðsins við deildarmeistara Grindavíkur í úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfubolta sem hefst í kvöld. 1.4.2026 11:30
„Íran mun spila á HM“ Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, segir að Íran muni taka þátt á komandi heimsmeistaramóti og spila leiki sína í Bandaríkjunum. 31.3.2026 17:30
Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Roberto De Zerbi mun í vikunni taka við sem nýr þjálfari Tottenham á Englandi eftir uppsögn Igors Tudor um helgina. Hann vill heimsmeistara með sér til Lundúna. 31.3.2026 16:17
Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum Tiger Woods sagði bandarískum lögregluyfirvöldum að hann hafi verið í símanum og að skipta um útvarpsstöð sem olli því að hann lenti í bílslysi í síðustu viku. Ópíóðar fundust í vasa Woods. 31.3.2026 16:05
Skór Rúnars upp í hillu Rúnar Kárason er hættur handboltaiðkun. Þetta tilkynnti Rúnar á samfélagsmiðlum síðdegis. 31.3.2026 14:18
Starf Howe í hættu Framkvæmdastjóri Newcastle segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framtíð Eddie Howe í starfi þjálfara liðsins. Staða hans verði tekin til skoðunar í sumar. 31.3.2026 12:02
Kolbeinn lagði upp í sigri Kolbeinn Birgir Finnsson lagði upp annað marka Vålerenga í 2-0 útisigri á Rosenborg í Þrándheimi í annarri umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. 22.3.2026 15:28
Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Barcelona vann 1-0 sigur á Rayo Vallecano á Nývangi í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Liðið eykur þar með forskot sitt á toppi deildarinnar. 22.3.2026 15:01
Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Daníel Leó Grétarsson fór meiddur af velli í 2-0 tapi Sönderjyske fyrir Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hætt er við því að hann missi af komandi leikjum Íslands við Kanada og Haíti. 22.3.2026 14:58
Rodman í heiðurshöll WWE Fyrrum körfuboltamaðurinn og glímukappinn Dennis Rodman var um helgina tekinn inn í heiðurshöll WWE-glímukeppninnar vestanhafs. 22.3.2026 14:31