Handbolti

Orri Freyr hetjan og Sporting bikar­meistari

Valur Páll Eiríksson skrifar
Orri Freyr Þorkelsson raðaði inn mörkum í úrslitaleik kvöldsins.
Orri Freyr Þorkelsson raðaði inn mörkum í úrslitaleik kvöldsins. Getty/Gualter Fatia

Orri Freyr Þorkelsson fór hamförum er Sporting Lissabon varð portúgalskur bikarmeistari eftir sigur á Benfica í úrslitaleik í dag eftir framlengdan leik. Stiven Tobar Valencia tók ekki þátt í leiknum.

Fastlega var búist við sigri Sporting í dag en liðið varð á dögunum Portúgalsmeistari þriðja árið í röð. Liðið var yfir stærstan part og leiddi með þremur mörkum þegar tæpar tíu mínútur voru eftir.

Benfica náði góðum kafla og komst marki yfir. Liðin skiptust á mörkum á æsispennandi lokakafla þar sem Benfica var alltaf skrefi á undan. Orra Frey tókst að jafna leikinn fyrir Sporting í lokasókninni og knýja þannig fram framlengingu.

Sporting hafði þar betur og vann 41-39 sigur. Orri Freyr var markahæstur með heil 13 mörk fyrir Sporting í leiknum, auk þess að bjarga liðinu frá tapi með jöfnunarmarkinu undir lokin.

Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×