Handbolti

Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik

Andri Broddason skrifar
Reynir Þór Stefánsson spilaði stórt hlutverk fyrir Melsungen þegar liðið lagði Rhein-Neckar Löwen af velli í þýsku bikarkeppni karla í handbolta.
Reynir Þór Stefánsson spilaði stórt hlutverk fyrir Melsungen þegar liðið lagði Rhein-Neckar Löwen af velli í þýsku bikarkeppni karla í handbolta. Getty/Andrzej Iwanczuk

Íslendingaslagur var í annarri umferð í þýsku bikarkeppni karla í handbolta. Reynir Þór Stefánsson lék með Melsungen þegar liðið vann Rhein-Neckar Löwen með Hauk Þrastarson innanborðs 35-33 í framlengdum leik.

Leikurinn var kaflaskiptur þar sem Rhein-Neckar Löwen náði nokkrum sinnum nokkurra marka forystu en stuttu seinna náði Melsungen að jafna metin stuttu seinna. Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn og var staðan 17-16 í hálfleik fyrir gestina í Rhein-Neckar Löwen.

Í byrjun seinni hálfleiks áttu bæði lið erfitt með en skora að þegar leið á hálfleikinn byrjuðu mörkin að koma. Leikurinn hélt áfram að vera gríðarlega jafn og endaði hann 29-29 og ljóst var að það þurfti að framlengja leikinn.

Eftir fyrri hálfleik framlengingarinnar var Rhein-Neckar Löwen með eins marks forystu 32-31, eftir mark frá Hauki Þrastarsyni. Í seinni hálfleik framlengingarinnar var Melsungen fljótt að jafna og stuttu síðar var liðið loksins komið með forystuna í leiknum eftir að Reynir Þór gaf góða stoðsendingu á David Mandic sem skoraði örugglega.

Í næstu sókn fengu gestirnir í RN Löwen gullið tækifæri til að jafna úr vítakasti en Kentin Mahe klúðraði á punktinum. Melsungen tóku þá boltann og skoraði Aaron Mensing í næstu sókn og tryggði ótrúlegan 35-33 sigur í framlengingu.

Reynir Þór var markahæsti leikmaður Melsungen með sex mörk en liðsfélagi hans, Florian Drosten, skoraði jafn mörg mörk. Jannik Kohlbacher var markahæsti leikmaður Rhein-Neckar Löwen með átta mörk en Haukur Þrastarson var næstmarkahæstur með fimm mörk. Haukur gaf einnig fimm stoðsendingar og var því afkastamikill í sókn RN Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×