Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Yfirvöld á Maldíveyjum hafa fundið lík fjögurra ítalskra kafara sem saknað hafði verið síðan í síðustu viku. Hópurinn var frá háskólanum í Genóa og var þar til að sinna rannsóknum. Maldíveyjar eru sjálfstætt ríki staðsett í Indlandshafi og þykja búa yfir gífurlegri náttúrufegurð. Þar á meðal eru fjölskrúðug kóralrif sem hópurinn hugðist rannsaka. 18.5.2026 15:45