Viðskipti innlent

Á­fram lækkar í­búða­verð að raun­virði

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Húsnæðisvísitala hækkar í fyrsta skipti í þrjá mánuði. 
Húsnæðisvísitala hækkar í fyrsta skipti í þrjá mánuði.  Vísir/Vilhelm

HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl.

Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,80 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent. Íbúðaverð hefur því lækkað um 3,25% að raunvirði síðastliðið ár. Ellefu mánuði í röð hefur íbúðaverð nú lækkað að raunvirði á ársgrundvelli.

Sé hækkunin sundurgreind má sjá að á höfuðborgarsvæðinu lækkaði íbúðaverð um 0,09 prósent á meðan á landsbyggðinni hækkaði verðið um 0,43 prósent. Á landsvísu hækkaði sérbýli, um 1,2 prósent, á meðan fjölbýli lækkaði.

Í tilkynningu frá er talinn júlímánuður árið 2023 hefur vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna á ársgrundvelli síðan í byrjun árs 2011, að því er fram kemur í tilkynningu HMS. Á þeim tíma hafi fasteignamarkaðurinn verið að jafna sig eftir efnahagshrunið árið 2008 og árstaktur íbúðaverðs haldist neikvæður í rúm tvö ár samfleytt.

„Íbúðaverð lækkaði þó meira að raunvirði á ársgrundvelli um nokkurt skeið frá vormánuðum ársins 2023 fram undir byrjun árs 2024, eða um allt að 6%. Á þeim tíma voru miklar vaxtahækkanir farnar að hægja verulega á verðhækkunum á markaðnum áður en Grindavíkuráhrifin tóku við. Þar áður hafði íbúðaverð þó ekki lækkað meira og lengur að raunvirði síðan á eftirhrunsárunum þegar lækkunarhrinan varði í rúm þrjú ár og íbúðaverð lækkaði um allt að 20% að raunvirði á einu ári,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×