Innlent

Fyrrum banka­stjóri og fram­bjóðandi Sam­fylkingar leiða stjórn Land­spítalans

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Birna Einarsdóttir, nýr varaformaður stjórnar, og Regína Ásvaldsdóttir, nýr formaður stjórnar Landspítalans.
Birna Einarsdóttir, nýr varaformaður stjórnar, og Regína Ásvaldsdóttir, nýr formaður stjórnar Landspítalans. Samsett

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Regína er reynslumikil innan opinberrar stjórsýslu. Hún hefur gegnt bæjarstjórastöðum í Mosfellsbæ og á Akranesi og var þar á undan forstöðumaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Regína skipaði sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í nýlegum borgarstjórnarkosningum. 

Varaformaður verður Birna Einarsdóttir, áður bankastjóri Íslandsbanka árin 2008 til 2023. 

Aðrir stjórnarmenn eru Thor Aspelund, doktor í líftölfræði. Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri og Anna Sigríður Íslind, prófessor í tölvunarfræði og sérfræðingur í hönnun, þróun og notkun stafrænna heilbrigðistæknilausna og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu,

Varamenn í stjórn eru Óskar Reykdalsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir. Ráðherra skipar einnig tvo áheyrnarfulltrúa starfsmanna spítalans. Þeir eru Signý Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Theodór Skúli Sigurðsson svæfingalæknir.

Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×