Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þjófar herja á fyrir­tæki borgarinnar

Áfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda.

Fer frá lax­eldi í eldri borgara

Jónas Heiðar Birgisson hefur verið ráðinn sem fjármálastjóri Sjómannadagsráðs en undir ráðið heyra Hrafnistuheimilin, DAS íbúðir, og Happdrætti Das. Jónas Heiðar tekur við af Kristjáni Björgvinssyni, sem lætur nú af störfum eftir átta ár hjá Sjómannadagsráði.

Far­þegum fækkaði milli ára

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða

Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis.

Varað við vind­hviðum á Vest­fjörðum

Vegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum.

„Það bara fannst ekki neitt“

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða.

Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri

Fréttastofu bárust í kvöld ábendingar um að greiðslumiðlun hjá bæði Verifone og Rapyd lægi niðri, til að mynda í Laugarásbíói og Sambíóunum. Framkvæmdastjóri Verifone neitar því að bilun hafi átt sér stað og hefur athugasemd hans verið bætt við neðst í þessari frétt. 

Hníf­jafnt í nýrri könnun

Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei.

Mennirnir séu ís­lenskir og tengist fjöl­skyldu­böndum

Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 

Sjá meira