Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann. 5.8.2026 17:45
Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars hinna ákærðu í hryðjuverkamálinu svokallaða, undirbýr nú bótakröfu á hendur ríkinu. Lögmaðurinn segir kröfuna munu byggja á þeim orðsporshnekki sem hann hafi orðið fyrir og þeim tíma sem skjólstæðingur hans var látinn sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Bótakrafan mun nema tugum milljóna, að hans sögn. 5.8.2026 01:34
Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Gistinóttum á hótelum í júnímánuði fækkaði milli ára, eða um 0,4 prósent, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Gistinæturnar voru rúmlega 532 þúsund á landsvísu en voru í fyrra 535 þúsund. Mikil umræða hefur verið síðustu mánuði um óvissu í efnahagsmálum og hvort Ísland sé orðið of dýrt fyrir ferðamenn. 4.8.2026 23:32
Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Í lok annars ársfjórðungs 2026 bjuggu 396.500 manns á Íslandi og fjölgaði landsmönnum um 1450 á öðrum ársfjórðungi. Það er Hagstofa Íslands sem greinir frá. 4.8.2026 22:27
Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Fylgi Samfylkingarinnar hækkar milli mánaða í Þjóðarpúlsi Gallup, það mælist nú 27,9 prósent en mældist 26,2 prósent í liðnum mánuði. Sjálfstæðisflokkur eykur einnig fylgi sitt, sem fer úr 24,9 í 25,4 prósent. 4.8.2026 20:29
Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Í kvöldfréttum Sýnar verður fjallað um nýja könnun Maskínu, stöðu skipverja á Bandero, umferðaröryggi á Hverfisgötu og atburðarásina í Ceuta. 4.8.2026 18:10
Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Akureyringar buðu landsmenn alls staðar að velkomna til höfuðborgar Norðurlands yfir verslunarmannahelgina. 3.8.2026 17:04
Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Á sjötta þúsund sótti um helgina Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fór á Sauðárkróki í ár. Ný keppnisgrein í tröppuhlaupi vakti kátínu en keppt var í tuttugu greinum alls. Keppendur eru ellefu hundruð börn og ungmenni af landinu öllu. 3.8.2026 13:47
Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Fimm gista fangageymslur í Vestmannaeyjum eftir atburði næturinnar en ráðist var að tveimur mönnum við skyldustörf. Í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum segir að gestir séu farnir að tínast frá eynni í blíðskaparveðri. 3.8.2026 10:23
Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Veginum upp að útsýnispalli Bolafjalls verður lokað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi verður á sólu. Búist er við mikilli aðsókn ferðamanna á Vestfirði en almyrkvinn verður aðeins sýnilegur á landinu vestanverðu. 3.8.2026 07:01