Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Grunn lægð fer austur fyrir norðan land í dag. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar fylgir henni ákveðin vestlæg átt og rigning. Búast má við dálítilli rigningu á Suður- og Suðausturlandi seinnipartinn. Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig síðdegis. 21.9.2025 07:29
Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Einn var handtekinn vegna líkamsárásar í Hafnarfirði og tilkynnt um mann með sveðju utandyra í Kópavogi. Tveir voru handteknir sem óku undir áhrifum á lögreglubíl og reyndu svo að skipta um sæti. 21.9.2025 07:23
Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Borgarfulltrúar Viðreisnar lögðu fram tillögu í vikunni um að kanna hvort stytta ætti sumarfrí grunnskólabarna um allt að tvær vikur. Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra segist til í að taka umræðuna um málið. 20.9.2025 14:49
Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Jóhann Páll Jóhannsson, loftslags-, orku- og umhverfisráðherra, hefur dregið til baka þátttöku sína á haustfundi SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, í ljósi áskorunar stéttarfélagsins Eflingar frá því í gær þar sem þau hvöttu ráðherrann til að mæta ekki. 20.9.2025 14:13
Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu Sniðgangan 2025 verður gengin í dag á bæði höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Sniðgangan fer fram í annað sinn en tilgangur hennar er að vekja athygli á sniðgönguhreyfingunni og til að sýna samstöðu með Palestínu. Skipuleggjandi segir þetta friðsæla leið til að sýna samstöðu og taka afstöðu gegn Ísrael. 20.9.2025 13:46
Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það hafa gerst að fólk með endurkomubann hafi komist til landsins. Reynt sé að fylgja þeim úr landi eins fljótt og hægt er. Hún segir það muna skipta sköpum fyrir löggæslu á Suðurnesjum að fá móttöku- og brottfararstöð. 20.9.2025 11:18
Landsþing Viðreisnar hafið Landsþing Viðreisnar hófst í morgun og stendur yfir um helgina á Grand hótel. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins, er sjálfkjörin formaður, Daði Már Kristófersson sjálfkjörinn varaformaður og Sigmar Guðmundsson sjálfkjörinn ritari. 20.9.2025 10:04
Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Peningakassa var stolið af hóteli í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að atvikið hafi náðst á upptökuvél og að annar gerandinn sé þekktur af lögreglu. Þar kemur einnig fram að málið sé í rannsókn. 20.9.2025 09:31
Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Öldungadeildaþingmaðurinn Ted Cruz, Repúblikani frá Texas, líkti hótunum Brendan Carr, forstjóra Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), um að afturkalla útvarpsleyfi ABC-stöðva vegna ummæla spjallþáttastjórnandans Jimmy Kimmel, við taktík skipulagðra glæpaforingja, mafíósa, í kvikmyndinni Goodfellas frá árinu 1990. 20.9.2025 08:46
Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Eistar hafa óskað eftir því að virkja 4. grein Atlantshafssáttmálans sem kveður á um að ríki geti óskað eftir því að bandalagsríkin ráði ráðum sínum ef eitthvert þeirra telur öryggi sínu ógnað. Eista segja Rússa hafa flogið þremur herþotum inni í flughelgi sína í gær. Þeim var að enda fylgt út af ítölskum flugmönnum F-35 þota á vegum Atlantshafsbandalagsins 20.9.2025 07:50