Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. október 2026 12:07 Hörður Arnarsson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu. Hörður tók við sem forstjóri Landsvirkjunar árið 2009 eftir að hafa starfað sem forstjóri Sjóvár um nokkurra mánaða skeið og leitt endurskipulagningu félagsins. Þar áður starfaði Hörður hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999 til 2009. Á þeim tæpu sautján árum sem Hörður hefur gegnt stöðu forstjóra hefur rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar verið sterkur og það ítrekað greitt ríkissjóði tugi milljarða í arð. Lítið hefur þó verið um byggingu nýrra stórra virkjana, sem Hörður hefur viðrað áhyggjur af. Þó var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett í síðasta mánuði. Vísir náði tali af Herði á tólfta tímanum sem sagðist lítið geta tjáð sig um málið. Aðspurður hvort hann væri enn starfandi forstjóri Landsvirkjunar játaði hann því en bað um að fá að ræða málið síðar. Í fundarboði til starfsmanna Landsvirkjunar á tólfta tímanum kemur fram að Hörður vonist til að sjá sem flest á fundinum klukkan 14:30. Fundurinn verður bæði í matsal Landsvirkjunar en aðrir starfsmenn geta fylgst með á Teams. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið. Landsvirkjun Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira
Hörður tók við sem forstjóri Landsvirkjunar árið 2009 eftir að hafa starfað sem forstjóri Sjóvár um nokkurra mánaða skeið og leitt endurskipulagningu félagsins. Þar áður starfaði Hörður hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999 til 2009. Á þeim tæpu sautján árum sem Hörður hefur gegnt stöðu forstjóra hefur rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar verið sterkur og það ítrekað greitt ríkissjóði tugi milljarða í arð. Lítið hefur þó verið um byggingu nýrra stórra virkjana, sem Hörður hefur viðrað áhyggjur af. Þó var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett í síðasta mánuði. Vísir náði tali af Herði á tólfta tímanum sem sagðist lítið geta tjáð sig um málið. Aðspurður hvort hann væri enn starfandi forstjóri Landsvirkjunar játaði hann því en bað um að fá að ræða málið síðar. Í fundarboði til starfsmanna Landsvirkjunar á tólfta tímanum kemur fram að Hörður vonist til að sjá sem flest á fundinum klukkan 14:30. Fundurinn verður bæði í matsal Landsvirkjunar en aðrir starfsmenn geta fylgst með á Teams. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Landsvirkjun Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira