Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Elon Musk segist nú sjá eftir sumum þeirra færslna sem hann setti á samfélagsmiðil sinn, X, í síðustu viku. Þar fór hann ófögrum orðum yfir nýtt fjárlagafrumvarp Trump. Hann sagði það „viðurstyggilegan hrylling“ og sagði Repúblikana, flokksmenn Trump, eiga að skammast sín. 11.6.2025 08:21
Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Neytendastofa hefur enn til skoðunar upplýsingagjöf bílastæðafyrirtækja um gjaldtöku. Neytendastofa sektaði í gær fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna. 11.6.2025 07:58
VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð. 10.6.2025 13:48
Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna, UNFPA, varar við því í nýrri skýrslu að hundruð milljóna um allan heim geti ekki eignast jafn mörg börn og þau langar vegna þess kostnaðar sem fylgir foreldrahlutverkinu eða vegna þess að þau finna ekki maka við hæfi. 10.6.2025 09:10
Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Konukot hefur síðustu tuttugu árin verið rekið hér í Eskihlíðinni en eftir margra mánaða leit að nýju húsnæði stendur til að flytja í nýtt húsnæði í Ármúla í ágúst eða september. Deildarstjóri málaflokks heimilislausra segir flutninginn mikið framfaraskref. Þau skilji áhyggjur nýrra nágranna en vilji vera í góðu samstarfi. 8.6.2025 23:20
Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Góðgerðardagurinn var haldinn í annað sinn í ár. Íbúar voru í aðdraganda dagsins beðnir um að styrkja nemendur um hundrað krónur til innkaupa á hráefnum. Á góðgerðadeginum sjálfum seldu nemendur svo mat, drykk og varning til styrktar Krafti, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. 7.6.2025 23:00
Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Fá mál sem Barnavernd Reykjavíkur vísar til lögreglu, þar sem grunur leikur á alvarlegu ofbeldi gegn barni, leiða til ákæru. Þetta sýnir meistararannsókn Elísabetar Gunnarsdóttur, félagsráðgjafa og deildarstjóra hjá Barnavernd Reykjavíkur. 5.6.2025 21:26
Metfjöldi barna í Kvennaathvarfinu Metfjöldi barna hefur dvalið það sem af er ári í Kvennaathvarfinu. Framkvæmdastýra segir ofbeldi alvarlegra og meira og erfitt að horfa upp á stöðuga fjölgun ofbeldismála. Á sama tíma sé erfiðara að losna undan slíku ofbeldi. 5.6.2025 13:00
„Auðvitað bregður fólki“ Formaður VR segir yfirvofandi launahækkanir æðstu embættismanna til marks um að topparnir í samfélaginu telji sig undanskylda þeim kröfum sem gerðar eru til venjulegs vinnandi fólks. Eðlilegra væri að launahækkanir embætismanna fylgdu kjarasamningum. 4.6.2025 19:39
Hlutfall barna sem beitti foreldra eða skylda ofbeldi tvöfaldaðist Skráðum tilkynningum um heimilisofbeldi hefur fjölgað um fimmtán prósent fyrstu mánuði ársins. Margar þeirra varða ofbeldi barna gegn foreldrum sínum eða ofbeldi foreldra gegn börnum sínum. Lögregla hefur verið í skráningarátaki en telur þó fjölgun umfram það. 4.6.2025 19:03