Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Victoria Hart, 33 ára gömul þriggja barna móðir frá Bretlandi, var stungin til bana á heimili sínu á Spáni um helgina. Börn hennar voru heima þegar móður þeirra var ráðinn bani, en elsti sonur hennar sem er ellefu ára, mun hafa kallað eftir aðstoð. Sex ára tvíburadætur Hart voru einnig í húsinu en meintur árásarmaður er sagður hafa sjálfur gefið sig fram við lögreglu. 26.1.2026 11:41
Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Uppbygging Arctic Adventures á þrettán gistihýsum í Skaftafelli er í fullu samræmi við lög og reglur auk þess sem húsin í núverandi mynd endurspegla ekki endanlega ásýnd þeirra þar sem þau eru enn á byggingarstigi. Þá ku verkefnið vera í fullu samræmi við gildandi skipulag sveitarfélagsins og þau leyfi sem fyrir liggja vegna verkefnisins. Þetta segir forstjóri Arctic Adventures sem svarar gagnrýni sem fram hefur komið vegna uppbyggingar húsanna, en lögð hefur verið fram stjórnsýslukæra vegna málsins. 26.1.2026 08:36
Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Fjölda flug- og lestarferða hefur verið aflýst í Danmörku í dag og á sumum stöðum um landið er fólk sem það getur hvatt til að vinna heima þar sem það á við vegna snjóstorms sem gengur yfir landið í dag. Snjórinn byrjaði að falla í suðurhluta landsins í morgun en búist er við að veðrið gangi yfir stóran hluta landsins þegar líður á daginn. 26.1.2026 07:46
Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Óbirt skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða lýsir veikri fjárhagsstöðu félagsins sem hafi verið rekið með ósjálfbærum hætti undanfarin ár. Sjóðstreymi hafi verið neikvætt, stjórnun þess verið línudans og aðferðum verið beitt sem hafi reynst rekstrinum þungar. Á hinn bóginn má lesa bjartsýni úr skýrslunni þar sem settar eru fram tillögur um hvernig megi snúa rekstri Félagsbústaða „frá vítahring til fjárhagslegrar sjálfbærni,“ líkt og það er orðað í skýrslunni. Meðal þess sem lagt er til er 1,5% raunhækkun leiguverðs hjá Félagsbústöðum. 22.1.2026 15:17
Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Oddvitaefni Samfylkingarinnar eru ósammála um hvort sitjandi borgarstjóri sé „atvinnupólitíkus“ eða ekki. Þau segja prófkjörsbaráttuna hafa einkennst af virðingu og hafa ekki upplifað ljótan eða harkalegan oddvitaslag. Þá segjast þau sammála um að það skipti máli að Samfylkingin gangi sameinuð til kosninga í vor, hvort sem sitjandi borgarstjóri eða nýliði með ferska sýn leiði flokkinn í borginni. Þau eru bæði þeirrar skoðunar að færa eigi flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. 22.1.2026 09:44
Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekar að Danir og Grænlendingar séu þeir einu sem geti tekið ákvarðanir um mál sem varða Danmörku og Grænland. Dönsk stjórnvöld séu í þéttu sambandi við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem sé fullmeðvitaður um afstöðu danska konungsríkisins en það sé gott og fullkomlega eðlilegt að framkvæmdastjóri bandalagsins ræði öryggi á Norðurslóðum við Bandaríkjaforseta. Þá fullyrðir varnarmálaráðherra Danmerkur að Rutte hafi ekki samið við Trump fyrir hönd landsins. 22.1.2026 08:41
Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, tók fimm ára dreng í Minnesota höndum þegar hann var á leið sinni heim úr skólanum. Að sögn skólayfirvalda í Columbia Heights, úthverfi Minneapolis, voru drengurinn og faðir hans teknir höndum í innkeyrslunni heima hjá sér og sendir í varðhald í Texas. 22.1.2026 07:56
Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl í ræðu sinni í Davos í dag. Hann ítrekaði enn og aftur að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland og að hann kalli eftir „tafarlausum viðræðum“ um kaup Bandaríkjanna á Grænlandi. Hann hyggist þó ekki beita til þess valdi. Alla veganna í tvígang virðist sem Trump hafi ruglast á nöfnum Íslands og Grænlands. 21.1.2026 15:52
Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Fulltrúar fjárlaganefndar Alþingis eru staddir í París þar sem þeir heimsækja í vikunni nokkrar stofnanir til að kynna sér verklag við fjárlagagerð innan OECD og verkefni fjárlaganefndar Frakklands. Formaður nefndarinnar segir ferðina hafa verið mjög gagnlega til þessa. Aðeins einn fulltrúi stjórnarandstöðunnar er með í för en um tíma var útlit fyrir að enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar færi með. 21.1.2026 14:04
Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Borgarstjórn samþykkti í gær tillögu meirihlutans sem meðal annars felur í sér um 2,4 milljarða króna eiginfjárframlag til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Tillagan var afgreidd í borgarstjórn, þrátt fyrir að skýrsla um stöðu Félagsbústaða hafi ekki verið gerð opinber, en í skýrslunni eru meðal annars settar fram tillögur um fjárhagslega endurskipulagningu stofnunarinnar. Oddviti Framsóknarflokksins telur augljóst að útspilið sé liður í prófkjörsbaráttu borgarstjóra. Borgarstjóri segir hins vegar að nýta þurfi tímann til að ráðast strax í aðgerðir hvað lýtur að félagslegu húsnæði, en tekur undir að það „hefði verið betra“ ef skýrslan hefði verið tilbúin. 21.1.2026 11:56