Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, lýsti breyttri heimsskipan og biðlaði til ríkja, annarra en stórvelda, að taka þátt í að veita stórveldapólitík mótvægi og taka þátt í mótun nýs heimsskipulags. Hann varar við því að heimurinn sé staddur í miðjum umbrotum þar sem stórveldi hafi vopnavætt viðskipti og tolla og misnoti efnahagslega innviði sem kúgunartæki. Minni og meðalstór ríki þurfi að sýna mótvægi við stórveldapólitík og boða breytta heimsskipan sem byggi á öðrum gildum. 21.1.2026 10:22
Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og varaformaður Viðreisnar, og forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. sækist eftir embætti formanns Samtaka iðnaðarins. Þá segist hann hafa sagt skilið við Viðreisn og lýsir óánægju með ríkisstjórnarsamstarf flokksins með Flokki fólksins. 21.1.2026 08:31
Heitt í hamsi vegna Grænlands Staða öryggis- og varnarmála og hótanir Bandaríkjaforseta í garð Grænlands voru þingmönnum ofarlega í huga í umræðu um störf þingsins við upphaf þingfundar í dag. Á meðan þingmenn allra flokka sem kvöddu sér hljóðs um alþjóðamálin sögðust styðja Grænlendinga og að hótanir Bandaríkjaforseta væru fráleitar, þá kvað á sama tíma við nokkuð ólíkan tón milli þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um það hvort Ísland ætti, í ljósi aðstæðna, að horfa meira til Evrópusambandsins. 20.1.2026 15:00
Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag Tilkynningum til lögreglu vegna heimilisofbeldis fjölgaði um tvö prósent í fyrra samanborið við síðustu þrjú ár á undan en alls fékk lögregla 2.485 slíkar tilkynningar á síðasta ári. Það jafngildir að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag en flestar tilkynningar um heimilisofbeldi bárust í desember, eða 138 tilkynningar. Tilkynningum um ofbeldi foreldra gegn börnum hefur fjölgað einna mest á milli ára. Innan við þriðjungur þolenda heimilisofbeldis segist hafa tilkynnt um ofbeldið til lögreglu. 20.1.2026 13:36
Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Sautján starfslokasamningar hafa kostað atvinnuvegaráðuneytið og undirstofnanir þess rúmar 95 milljónir á undanförnum átta árum. Flestir starfslokasamningarnir hafa verið gerðir hjá Hafrannsóknarstofnun, alls fimm, á tímabilinu frá 2018 til 2025 sem kostað hafa stofnunina tæpar 35 milljónir. 20.1.2026 11:36
Ingibjörg býður sig fram í formanninn Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. 20.1.2026 09:39
Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Sænska lögreglan hafði afskipti af þremur íslenskum karlmönnum fyrir drykkjulæti í Kristianstad í Svíþjóð á laugardaginn var. Mennirnir voru í haldi lögreglu í nokkrar klukkustundir en voru síðan látnir lausir. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Kristianstad í samtali við Vísi. 20.1.2026 09:10
Sandra tekin við af Guðbrandi Sandra Sigurðardóttir tók í gær sæti á Alþingi í stað Guðbrands Einarssonar sem sagði af sér þingmennsku í síðustu viku. Sandra er þannig tekin við sem sjötti þingmaður Suðurkjördæmis og eini þingmaður Viðreisnar í kjördæminu. Forseti Alþingis tilkynnti um breytingarnar við upphaf þingfundar í dag, en líkt og kunnugt er sagði Guðbrandur af sér á föstudaginn í tengslum við tilraun hans til vændiskaupa árið 2012. 20.1.2026 07:33
Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Sex voru handteknir og hald lagt á umtalsvert magn af fíkniefnum, vopnum og fjármunum í lögregluaðgerðum á Akureyri um helgina. Ráðist var í aðgerðirnar í leit að vopni sem grunur er um að notað hafi verið til að beita hótunum, en ráðist var í húsleit og handtökur á fjórum stöðum og eru tveir enn í varðhaldi. Rannsókn málsins beinist þó einkum að fjórum einstaklingum, þar af tveir undir átján ára aldri, eru til rannsóknar. Þá voru fjórir handteknir í sama lögregluumdæmi í tengslum við innbrot og þjófnað. 19.1.2026 13:04
Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Norski tónlistarmaðurinn Alexander Rybak verður meðal þátttakenda í norsku söngvakeppninni Melodi Grand Prix, undankeppni Norðmanna fyrir Eurovision sem fer fram í Austurríki í vor. Þannig leitast Rybak við að verða fulltrúi Noregs í þriðja sinn, en sautján ár eru síðan hann vann Eurovision með nokkrum yfirburðum árið 2009, þegar Jóhanna Guðrún hafnaði í öðru sæti fyrir Ísland. Önnur þekkt norsk hljómsveit hefur hin vegar dregið sig úr undankeppninni bandið vill ekki stíga á svið samhliða fulltrúa Ísraels. 19.1.2026 11:59