Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 08:35 Lilja Alfreðsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Ingibjörg Isaksen sækjast eftir forystusæti í Framsóknarflokknum. Vísir/samsett Ríflega 860 manns eru á kjörskrá fyrir 38. flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer í Reykjavík um helgina. Þar mun flokkurinn velja sér nýjan formann en ólíklegt þykir að allir sem eiga sæti muni mæta. Hörð barátta hefur verið um að tryggja kjörbréf, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi tryggt kjörbréf í gegnum flokksfélög til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins frambjóðandans geti stutt sína konu. Þá eru allmargir flokksþingsfulltrúar sagðir óákveðnir og ekki eins skýrar línur á milli fylkinga líkt og stundum hefur verið áður. Flokksþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica um helgina en kjör um nýja forystu flokksins hefst klukkan eitt á sunnudaginn samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá. Kjörnir verða formaður, varaformaður og ritari auk þess sem kosið verður í laga- og siðanefnd og skoðunarmenn reikninga og endurskoðandi verða kjörnir. Formannsframbjóðendur mætast í Pallborðinu á Vísi klukkan 15 í dag þar sem Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona mun spyrja þær Lilju Alfreðsdóttur og Ingibjörgu Isaksen spjörunum úr. Einn í varaformannsframboði, ennþá „Það er mikil stemning og spenningur fyrir þessu og verður gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, sem enn sem komið er er sá eini sem hefur gefið kost á sér í embætti varaformanns. „Það er enginn ennþá en auðvitað má bjóða sig fram alveg fram að kosningum á þinginu en ég hef ekki heyrt af neinum. En, það getur vel verið að það gerist, maður veit aldrei,“ segir Stefán. Lengi vel var Sigmar Vilhjálmsson orðaður við varaformannsframboð og virtist volgur fyrir því, en ekki virðist ætla að verða af því. Mest eftirvænting ríkir fyrir formannskjörinu þar sem Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir gefa kost á sér. Aðspurður segist Stefán Vagn ekki hafa íhugað að blanda sér í þann slag, heldur láti framboð til varaformanns duga. „Þó að þetta hafi verið ámálgað þá er þetta bara ágætt fyrsta skref,“ segir Stefán. „Ég er bara eins og aðrir, bíð bara spenntur.“ Allir í kjöri og enginn framboðsfrestur Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir var kjörin ritari flokksins í október þar sem hún hafði betur gegn þeim Jónínu Brynjólfsdóttur og Einari Frey Elínarsyni. Lilja gefur áfram kost á sér í embætti ritara og enn sem komið er hefur enginn annar lýst yfir framboði til embættisins. Líkt og Stefán Vagn bendir á er enginn framboðsfrestur, svo þrátt fyrir að línur séu nokkurn veginn farnar að skýrast þá getur tæknilega séð enn allt gerst. Strangt til tekið eru allir í kjöri en þeir sem vilja gefa kost á sér geta tilkynnt um það alveg þangað til að kosningin fer fram. Þannig gæti sá formannsframbjóðandi sem lýtur í lægra haldi í þeim slag ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er það nokkuð sem hvorki Ingibjörg né Lilja hafa í hyggju. Drama í ungliðahreyfingunni og fleiri félögum Líkt og fréttastofa hefur fjallað um hafa verið nokkur átök á bakvið tjöldin í tengslum við formannsslaginn, meðal annars á milli ungliðahreyfinga flokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til að mynda upp ágreiningur á milli SUF, Sambands ungra Framsóknarmanna, og UngFramsókn í Reykjavík þar sem borgarfulltrúinn Magnea Gná Jóhannsdóttir er formaður. Samkvæmt heimildum Vísis snerust deilurnar meðal annars um það hvernig staðið var að úthlutun kjörbréfa hjá Reykjavíkurfélaginu. Dæmi eru sögð um að fólki, sem hafi tekið lítinn þátt í starfinu, hafi verið smalað á fund og fengið sæti á flokksþingi, á kostnað annarra félaga sem hafi verið virkir í ungliðastarfi flokksins. Þá herma heimildir Vísis að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi markvisst reynt að manna kjörbréf í gegnum flokksfélög um landið, gagngert til þess að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins formannsframbjóðandans fengju sæti. Þannig þykir líklegt að allnokkrir þeirra sem annars eru á kjörskrá muni ekki einu sinni mæta á flokksþingið og detta þau atkvæði því niður dauð. Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Fleiri fréttir Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Sjá meira
Flokksþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica um helgina en kjör um nýja forystu flokksins hefst klukkan eitt á sunnudaginn samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá. Kjörnir verða formaður, varaformaður og ritari auk þess sem kosið verður í laga- og siðanefnd og skoðunarmenn reikninga og endurskoðandi verða kjörnir. Formannsframbjóðendur mætast í Pallborðinu á Vísi klukkan 15 í dag þar sem Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona mun spyrja þær Lilju Alfreðsdóttur og Ingibjörgu Isaksen spjörunum úr. Einn í varaformannsframboði, ennþá „Það er mikil stemning og spenningur fyrir þessu og verður gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, sem enn sem komið er er sá eini sem hefur gefið kost á sér í embætti varaformanns. „Það er enginn ennþá en auðvitað má bjóða sig fram alveg fram að kosningum á þinginu en ég hef ekki heyrt af neinum. En, það getur vel verið að það gerist, maður veit aldrei,“ segir Stefán. Lengi vel var Sigmar Vilhjálmsson orðaður við varaformannsframboð og virtist volgur fyrir því, en ekki virðist ætla að verða af því. Mest eftirvænting ríkir fyrir formannskjörinu þar sem Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir gefa kost á sér. Aðspurður segist Stefán Vagn ekki hafa íhugað að blanda sér í þann slag, heldur láti framboð til varaformanns duga. „Þó að þetta hafi verið ámálgað þá er þetta bara ágætt fyrsta skref,“ segir Stefán. „Ég er bara eins og aðrir, bíð bara spenntur.“ Allir í kjöri og enginn framboðsfrestur Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir var kjörin ritari flokksins í október þar sem hún hafði betur gegn þeim Jónínu Brynjólfsdóttur og Einari Frey Elínarsyni. Lilja gefur áfram kost á sér í embætti ritara og enn sem komið er hefur enginn annar lýst yfir framboði til embættisins. Líkt og Stefán Vagn bendir á er enginn framboðsfrestur, svo þrátt fyrir að línur séu nokkurn veginn farnar að skýrast þá getur tæknilega séð enn allt gerst. Strangt til tekið eru allir í kjöri en þeir sem vilja gefa kost á sér geta tilkynnt um það alveg þangað til að kosningin fer fram. Þannig gæti sá formannsframbjóðandi sem lýtur í lægra haldi í þeim slag ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er það nokkuð sem hvorki Ingibjörg né Lilja hafa í hyggju. Drama í ungliðahreyfingunni og fleiri félögum Líkt og fréttastofa hefur fjallað um hafa verið nokkur átök á bakvið tjöldin í tengslum við formannsslaginn, meðal annars á milli ungliðahreyfinga flokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til að mynda upp ágreiningur á milli SUF, Sambands ungra Framsóknarmanna, og UngFramsókn í Reykjavík þar sem borgarfulltrúinn Magnea Gná Jóhannsdóttir er formaður. Samkvæmt heimildum Vísis snerust deilurnar meðal annars um það hvernig staðið var að úthlutun kjörbréfa hjá Reykjavíkurfélaginu. Dæmi eru sögð um að fólki, sem hafi tekið lítinn þátt í starfinu, hafi verið smalað á fund og fengið sæti á flokksþingi, á kostnað annarra félaga sem hafi verið virkir í ungliðastarfi flokksins. Þá herma heimildir Vísis að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi markvisst reynt að manna kjörbréf í gegnum flokksfélög um landið, gagngert til þess að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins formannsframbjóðandans fengju sæti. Þannig þykir líklegt að allnokkrir þeirra sem annars eru á kjörskrá muni ekki einu sinni mæta á flokksþingið og detta þau atkvæði því niður dauð.
Formannsframbjóðendur mætast í Pallborðinu á Vísi klukkan 15 í dag þar sem Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona mun spyrja þær Lilju Alfreðsdóttur og Ingibjörgu Isaksen spjörunum úr.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Fleiri fréttir Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Sjá meira