Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku

Áform um að takmarka lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána við 25 ár eru sýndarmennska, segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir breytinguna gott fyrsta skref en skoða þurfi áhrif hennar á fyrstu kaupendur og aðra hópa.

Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki

Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennarar óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram.

Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent

Gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi gæti hækkað úr 673 krónum í 1.772 krónur á ferð samkvæmt tillögu sem velferðar- og mannréttindaráð bæjarins hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Hækkunin næmi rúmlega 163 prósentum hjá þeim sem falla í hærri tekjuflokk þjónustunnar.

Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjar­full­trúa

Seltjarnarnesbær hefur samþykkt tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og lækkun greiðslna til bæjarfulltrúa. Greiðslurnar verða jafnframt tengdar mætingu á bæjarstjórnarfundi. Aðgerðirnar eru liður í því að bregðast við þungri rekstrarstöðu bæjarins.

Inga vill á­fram banna at­vinnu­manna­hnefa­leika

Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða.

Undir­búa Litla spítalann við Háa­leitis­braut

Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur.

Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari

RÚV ákvað að hafa auglýsingahlé reglulega í Vikunni með Gísla Marteini þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Útvarpsstjóri segir fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal meðal ástæðna lengingarinnar. Heimilt er að rjúfa eigin framleiðslu RÚV með auglýsingum þegar þátturinn sjálfur nær klukkutíma.

Vilja borga fyrir eftir­lit með au pair

Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.

Sýn sakar Rúv um að mata ráðu­neytið á röngum tölum

Sýn telur að starfsmenn RÚV hafi matað menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið á sérvöldum og röngum tölfræðigögnum við undirbúning frumvarps um tekjuöflun Ríkisútvarpsins. Félagið segir ráðuneytið ekki hafa haft undir höndum skýrsluna sem það telur samanburð í frumvarpsdrögunum byggja á. RÚV hafi neitað að afhenda hana.

Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum

Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun.

Sjá meira