Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrir­heit ríkis­stjórnarinnar

Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.

Stórt skref í ein­földun leyfis­veitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“

Alþingi hefur samþykkt víðtækar breytingar á regluverki í umhverfis- og orkumálum sem eiga að hraða leyfisveitingum, fækka afgreiðslustöðum og færa stærri hluta ferlisins inn á eitt borð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Kjarni breytinganna er sá að umsækjendur eigi síður að fara milli margra stjórnvalda og að afgreiðsla orku- og umhverfismála verði samræmdari og skilvirkari.

1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Land­spítala

Nýr Landspítali ohf. og Reykjavíkurborg deila um hver eigi að bera kostnað af uppbyggingu bílakjallara og bílastæðahúss við nýja Landspítalann við Hringbraut. Nýr Landspítali telur borgina eiga að greiða 1.695 milljónir króna en borgin telur sig aðeins skuldbundna til að greiða 450 milljónir króna. Þar munar því 1.245 milljónum króna eða rúmum 1,2 milljörðum.

Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu til­lögu sem gengur lengra

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu um fleiri bílastæði við nýbyggingar í Reykjavík en hafnaði kröfu Sjálfstæðisflokksins um að ganga enn lengra og miða almennt við að minnsta kosti eitt bílastæði á hverja íbúð. Málið fer nú áfram til borgarráðs.

Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað

Ný matvöruverslun frá Navy Exchange Service Command, NEX, hefur verið opnuð á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða svonefndan Micro Market-sölustað, sem var tekinn í notkun 10. mars og er ætlaður bandarískum hermönnum og öðru liði Atlantshafsbandalagsins á svæðinu.

Varð fyrir „á­falli“ að sjá upp­sagnar­bréf

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina ætla að ná frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið. Á Alþingi í dag sagði hann að það hefði verið „nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun“ að lesa uppsagnarbréf sem honum var birt í auglýsingu í Morgunblaðinu.

Telja að bíla­stæðum fækki eftir að þau voru færð úr upp­dráttum

Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Í þremur þeirra er gert ráð fyrir að nákvæm útfærsla bílastæða verði ekki lengur sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin síðar.

Vaxta­hækkun í maí blasi við

Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra.

Ræddu „fjóra strámenn“, von­brigði og hags­muna­á­rekstra

„Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað,” sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún ræddi frétt Morgunblaðsins um meint orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Sjá meira