Semja við Erni um flug til Eyja Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Erni um flug til Vestmannaeyja. Flognar verða fjórar ferðir í viku á tímabilinu 15. desember til 28. febrúar og verður fyrsta flugið næstkomandi sunnudag. 15.12.2023 10:40
Jóhanna Guðrún stýrir Dineout í Danmörku Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku. Hún hefur á síðustu misserum leitt útrás hugbúnaðarfyrirtækisins þar í landi. 15.12.2023 10:34
Baldur kaupir félagsheimilið á Fellsströnd La Dolce Vita ehf., félag í eigu Baldurs Ingvarssonar hefur fest kaup á félagsheimilinu að Staðarfelli á Fellsströnd af sveitarfélaginu Dalabyggð, Kvenfélaginu Hvöt og Ungmennafélaginu Dögun. Baldur hefur starfað sem staðarhaldari á Staðarfelli. 15.12.2023 07:47
Víða krefjandi aðstæður á vegum Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að það verði krefjandi aðstæður á vegum austur fyrir fjall í dag og eins norður í land og vestur á firði. 15.12.2023 07:23
Hvassviðri víða á landinu í dag og gular viðvaranir Gera má ráð fyrir hvassviðri víða um land í dag og eru gular viðvaranir í gildi. Eftir útsynning gærdagsins þá nálgast hlýtt loft landið úr suðri og framan af degi þá verður allhvöss sunnanátt með slyddu eða snjókomu, en rigningu sunnantil. 15.12.2023 07:09
Samið um fjölnota íþróttahús og aðgengi Borgarlínu á Hlíðarenda Samkomulag um frekari uppbyggingu á Hlíðarenda í Reykjavík, áform um byggingu fjölnota íþróttahúss, endurbyggingu gervigrasvallar og aðgengi Borgarlínu var samþykkt í borgarráði Reykjavíkur í gær. 15.12.2023 06:57
Orban stöðvar 50 milljarða evru hjálparpakka ESB til Úkraínu Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa stöðvað fyrirhugaðan 50 milljarða evru hjálparpakka Evrópusambandsins til Úkraínu. Ákvörðun Ungverja var tekin fáeinum klukkustundum eftir að samkomulag náðist um að hefja viðræður um aðild Úkraínu að sambandinu. 15.12.2023 06:38
Tveir handteknir vegna innbrots í Garðabæ Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo vegna innbrots sem framið var í Garðabæ. Þeir hafa báðir verið vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. 15.12.2023 06:10
Rut, Rúna Guðrún og Skúli til KPMG Rut Gunnarsdóttir, Rúna Guðrún Loftsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson hafa öll verið ráðin nýir verkefnastjórar á ráðgjafarsviði KPMG. 14.12.2023 12:59
Ólafur Helgi, Stefanía Guðrún og Finnur Þór í dómarastól Dómsmálaráðherra hefur skipað Ólaf Helga Árnason og Stefaníu Guðrúnu Sæmundsdóttir í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá og með 18. desember 2023. Jafnframt hefur Finnur Þór Vilhjálmsson verið settur dómari við sama dómstól frá og með 18. desember 2023 til og með 28. febrúar 2029 vegna leyfis skipaðs héraðsdómara. 14.12.2023 12:50