Skóla- og menntamál

Skóla- og menntamál

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Fréttamynd

Þörf sé á að endur­hugsa fjár­mögnum NPA-þjónustu

Í hádegisfréttum verður rætt við formann velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð. Þá fjöllum við um andlega heilsu ungs fólks en þeim hefur fækkað á síðastliðnum áratug sem telja hana góða.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hrafnagilshverfi stækkar ört

Á Hrafnagili hefur gríðarleg uppbygging orðið síðustu ár og fær skólinn þar meiriháttar yfirhalningu í sumar. Oddvitinn segir ánægjulegt hversu margt ungt fólk er að leita í bæinn.

Innlent
Fréttamynd

Skipuð skóla­meistari eftir storminn á Bif­röst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar.

Innlent
Fréttamynd

Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“

Áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum og foreldra leikskólabarna gagnrýna þá breytingu að meirihlutinn hafi aðskilið grunn- og leikskólastigið í tveimur nýjum ráðum. Þá gagnrýna fulltrúar starfsmanna og stjórnenda það harðlega að meirihlutinn ætli í samtal við ráðherra um styttingu leikskólakennaranámsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir milljarða­hönnun skóla í Voga­hverfi óraun­hæfa

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja einfalda uppbyggingu skóla og leikskóla og segir verða að læra af uppbyggingu Brákarborgar. Hönnun nýs skóla í Vogahverfi sem samþykkt var fyrir kosningar, verði til dæmis aldrei að veruleika. Framkvæmdin sé of dýr. Nota eigi teikningar sem til eru og nýta betur samstarfi við einkaaðila við hagkvæma uppbyggingu. 

Innlent
Fréttamynd

Fram­tíð mennta­stofnana á Akur­eyri varðar okkur öll

Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

Segir þörf á fræðslu um kyrkingar­tak í grunn­skólum

Sérfræðingur í ofbeldismálum hjá þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum landsins en boðað hefur verið til samfélagmiðlaátaks um kyrkingartak. Margir unglingar telji það hluta af eðlilegu kynlífi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur flestir sem út­skrifast af náttúrufæðibraut

Í fyrra var fyrsta árið þar sem náttúrufræðibraut var ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í nær áratug, eða frá árinu 2016. Flestir sem brautskráðust með stúdentspróf í fyrra útskrifuðust af öðrum en hefbundnum námsbrautum.

Innlent
Fréttamynd

Jensína Edda er Reyk­víkingur ársins

Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra Laufásborgar er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun en þangað voru þær Jensína mættar eldsnemma við formlega opnun árinnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað. 

Innlent
Fréttamynd

Kennarar óttast fram­kvæmd símafrís

Grunnskólanemendur í Reykjavík mega hvorki nota farsíma né sambærileg snjalltæki á skólatíma næsta haust eftir að borgarstjórn samþykkti að taka upp símafrí í skólunum. Foreldrar fagna þessu en kennarar hafa áhyggjur af framkvæmdinni.

Innlent
Fréttamynd

Á að kenna ís­lensku við Há­skóla Ís­lands?

Fyrir Alþingi Íslendinga liggur nú fyrir frumvarp um svokallaðar gjaldtökuheimildir opinberra háskóla til að taka skólagjöld af nemendum sínum. Lætur ekki mikið yfir sér en er þó afar afdrifaríkt í fleiri en einum skilningi.

Skoðun
Fréttamynd

Göngu­túr við HR endaði í Lands­rétti

Landsréttur staðfesti sýknu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu sem féll fyrir utan Háskólann í Reykjavík og krafðist bóta frá skólanum. Hún taldi að misfella í stéttinni væri á ábyrgð skólans en dómurinn féllst ekki á það.

Innlent
Fréttamynd

Náms­efnis­gerð: Nýtum það sem þegar er til

Áhugavert var að hlusta á Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, ræða stöðu menntakerfisins í Sprengisandi. Þar var meðal annars rætt um námsmat, framlög til skólamála og námsefnisgerð.

Skoðun
Fréttamynd

„Við horfum bjart­sýn fram á veg“

Brautskráning Bifrastar fór fram í dag í Borgarnesi. Aldrei hafa fleiri brautskrást frá skólanum eða 279 manns og því um stærstu útskrift skólans frá upphafi að ræða. 

Innlent