Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta-hótela, kemst hvorki lönd né strönd með áform sín um tíu milljarða króna hótelbyggingu í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs þar sem Vegagerðin neitar að leggja veg til hans vegna andstöðu eigenda nágrannajarðar. Innlent 10.8.2026 22:00
Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Lögreglan á Suðurlandi reynir nú að hafa uppi á breskum hjónum sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á laugardaginn. Lögreglu barst tilkynning um málið í gær og reynir nú að rekja ferðir fólksins. Innlent 10.8.2026 17:05
Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú til móts við sjúkrabíl sem flytur slasaðan mann eftir hestaslys sem varð austur við Kirkjubæjarklaustur. Innlent 8.8.2026 20:09
Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent 16.7.2026 22:37
Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir óþolandi og óþarfi að erlendir ferðamenn séu staðnir að utanvegaakstri ár eftir ár. Hún segir þurfa að nýta heimildir til viðurlaga betur og það þurfi samstillt átak stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um að gæta þess að allir sem heimsæki landið, innlendir og erlendir, gangi vel um það. Innlent 23. júní 2026 09:05
Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum sem treystu sér ekki til að halda för áfram. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni. Innlent 7. júní 2026 15:11
Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní. Innlent 30. maí 2026 11:56
Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Talningu er lokið í Skaftárhreppi. 330 greiddu atkvæði, sex kjörseðlar voru auðir og fjórir voru ógildir. Meirihlutinn er fallinn. Innlent 16. maí 2026 20:48
Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Lokað verður fyrir umferð um þjóðveg 1 milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs klukkan ellefu í kvöld vegna veðurs. Sömuleiðis verður Fjarðarheiði lokað klukkan tíu af sömu ástæðu. Innlent 21. mars 2026 17:28
Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Heiða Guðný Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum í Skaftártungu er sérstaklega kát þessa dagana því hún eignaðist geitina Kiðu Sól nýlega en nokkrum dögum eftir það bar Kiða Sól fallegu kiði, sem fékk strax nafnið Krummi geitungur. Innlent 27. febrúar 2026 20:04
Rúta hafnaði utan vegar og valt Lítil rúta með sjö farþega fór út af vegi og valt austan við Kirkjubæjarklaustur í morgun. Farþegar voru fluttir á heilsugæslustöð á Kirkjubæjarklaustri með minniháttaráverka. Mikil hálka er á Suðurlandi og er hringvegurinn lokaður milli Klausturs og Freysness. Innlent 18. febrúar 2026 13:13
Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Óvissustig verður á veginum milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns frá klukkan 15:00 í dag og fram eftir morgundeginum 12. janúar. Búast má við að vegurinn geti lokað með skömmum fyrirvara samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Veður 11. janúar 2026 12:05
Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Hringvegurinn mun styttast umtalsvert á nokkrum köflum á Suðausturlandi á næstu tíu til fimmtán árum. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir styttingu framhjá Blönduósi, samkvæmt áformum sem kynnt eru í samgönguáætlun. Innlent 22. desember 2025 21:51
Skaftárhlaup enn yfirstandandi Skaftárhlaup er enn yfirstandandi og stöðugt. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að úrkoma og leysing á svæðinu hafi bætt að hluta í rennsli sem mælist rúmlega 160 rúmmetrar á sekúndu (m3/s) við Sveinstind. Það samsvari meðalrennsli að sumri. Innlent 11. desember 2025 15:17
Fjarðarheiði lokuð og óvissustig suðaustantil Fjarðarheiði er nú lokuð vegna veðurs og þá er óvissustig á veginum milli Skaftafells og Jökulsárlóns í dag fram eftir degi. Innlent 10. desember 2025 07:53
Vatnshæðin aðeins lækkað í Skaftá Hlaupið heldur áfram á svipuðum hraða í Skaftá. Náttúruvársérfræðingur segir vatnshæð um 180 sentímetra og að Veðurstofan eigi ekki von á því, eins og staðan er núna, að tjónið verði verulegt af hlaupinu. Innlent 9. desember 2025 08:06
Hlaup hafið í Skaftá Hlaup er hafið í Skaftá. Björgvin Karl Harðarson bóndi á Hunkubökkum í Skaftárhreppi tók eftir miklum breytingum á ánni milli daga. Sérfræðingar Veðurstofunnar segja hlaupið minniháttar og von sé á tilkynningu. Innlent 8. desember 2025 10:55
Veginum lokað milli Skaftafells og Jökulsárlóns vegna veðurs Búið er að loka veginum milli Skaftafells og Jökulsárlóns vegna veðurs. Innlent 27. nóvember 2025 13:14
Ungt fólk í bílnum og annað alvarlega slasað Rannsókn alvarlegs umferðarslyss sem varð á hringveginum austan við Kirkjubæjarklaustur í gær stendur enn yfir og fólkið sem var í bílnum sem valt út af veginum er enn á sjúkrahúsi eftir því sem lögreglan á Suðurlandi kemst næst, og er annað þeirra talsvert mikið slasað. Innlent 21. október 2025 11:06
Alvarlegt umferðarslys austan við Klaustur Alvarlegt umferðarslys varð á hringveginum við Krossá nærri Núpsstað austan við Kirkjubæjarklaustur þegar bíll valt rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Tveir voru um borð í bílnum. Innlent 20. október 2025 08:41
Mikil og góð stemning á uppskeruhátíð Skaftárhrepps Íbúar í Skaftárhreppi og gestir þeirra ætla að njóta helgarinnar með uppskeru og þakkarhátíð þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í dag er til dæmis opið hús á nokkrum stöðum og barnaskemmtun í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri. Lífið 18. október 2025 12:12
Mikil ánægja hjá ferðamönnum með alla aðstöðu í Skaftafelli Um 140 þúsund ferðamenn hafa heimsótt gestastofuna í Skaftafelli það sem af er ári. Um 10% af ferðamönnunum eru Íslendingar. Mikil ánægja er með tjaldsvæðið í Skaftafelli og allan aðbúnað á staðnum. Innlent 1. september 2025 20:03
Komu göngumanni til bjargar við Lakagíga Björgunarsveitir á Skaftársvæðinu voru kallaðar út rétt eftir miðnætti vegna göngumanns sem var á göngu við Úlfárdalssker og hafði villst á leið sinni. Innlent 28. ágúst 2025 07:39
Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum vegna manns sem slasaðist norðan við Skaftafell. Fyrst var talið af hefja þyrfti leit þar sem ekki lá fyrir hvar maðurinn væri nákvæmlega. Innlent 27. ágúst 2025 21:06
Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Á ferðum sínum um landið þegar RAX vann fyrir Morgunblaðið, hittu hann og blaðamaðurinn Guðni Einarsson margar merkilegar og áhugaverðar týpur. Þeirra á meðal var hinn tækisinnaði Jóhann Þorsteinsson á Sandaseli. Hann hafði frá unga aldri sýnt mikinn áhuga á tækjum og tækni. Lífið 31. júlí 2025 07:02