Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum Barnung stúlka féll niður loftræstistokk við Þverholt í Mosfellsbæ árið 2015 og hlaut skaða af. Landsréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms um að eigandi fasteignarinnar þar sem slysið átti sér stað bæri skaðabótaábyrgð á slysinu. Innlent 4. október 2024 11:00
Ánægð með að stjórnvöld viðurkenni mönnunarvandann Efling undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem nær til félagsmanna á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum. Formaður Eflingar fagnar því að stjórnvöld viðurkenni loks mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. Innlent 3. október 2024 11:50
Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Mosfellsbær auglýsir eftir rekstrar- og samstarfsaðilum í tengslum við byggingu nýrrar þjónustu- og aðkomubyggingar sem verður byggð við íþróttamiðstöðina að Varmá. Samstarf 1. október 2024 13:52
Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, segir áríðandi að farið verði strax í framkvæmdir nýs samgöngusáttmála. Ekki hafi verið farið í neinar stórar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu síðan 2011. Það sé farið að hafa áhrif. Ásgeir fór yfir stöðuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 30. september 2024 09:04
Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Sjálfsagt var fagnað langt fram á nótt í Mosfellsbæ eftir að Afturelding tryggði sér sæti í efstu deild karla í fótbolta í gær, í fyrsta sinn. Við þessi tímamót fær Hveragerði ákveðinn stimpil sem Mosfellsbær hefur lengi haft. Íslenski boltinn 29. september 2024 07:02
Kona ákærð fyrir stunguárás í Mosfellsbæ Kona hefur verið ákærð fyrir stunguárás sem á að hafa átt sér stað í íbúð í Mosfellsbæ um nótt í apríl 2021. Innlent 26. september 2024 08:03
Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Rúmlega sex af hverjum tíu nýbyggingum sem auglýstar voru til sölu á höfuðborgarsvæðinu á fyrri hluta árs eru óseldar. Aðeins 15 prósent af heildarframboði nýbygginga eru auglýst eða seld undir 65 milljónum króna. Viðskipti innlent 16. september 2024 16:11
Sárnar að sex ára syni sé lýst sem óðum ofbeldismanni Móðir drengs í 2. bekk í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ segir sárt að vita til þess að sonur hennar eigi enga vini í upphafi skólaárs, þar sem hann hefði nánast verið tekinn úr umferð í 1. bekk. Drengurinn mætti með hníf í skólann í vor, en móðir hans segir ekki alla söguna sagða. Skólastjórinn segir sárt að vita af vanlíðan nemanda og stefnt sé að því að finna farsællega lausn sem henti öllum. Innlent 16. september 2024 12:37
Sendir dótturina ekki í skólann vegna ofbeldis Móðir stúlku í 2. bekk í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ segist vera að niðurlotum komin eftir baráttu við skólayfirvöld vegna ofbeldis sem dóttir hennar hafi orðið fyrir í skólanum af hálfu samnemanda. Hann hafi hótað stúlkunni öllu illu og í einu tilviki mætt með hníf í skólann. Innlent 15. september 2024 22:59
Handtekinn eftir eftirför úr miðbæ í Mosfellsbæ Karlmaður verður ákærður fyrir fjölda umferðarlagabrota eftir eftirför lögreglu sem hófst í miðbænum síðdegis í gær endaði í Mosfellsbæ. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi á ákveðnum köflum ekið á 200 kílómetra hraða á klukkustund. Innlent 15. september 2024 09:51
Sérsveitin til aðstoðar við eftirför í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæði veitti ökumanni á mótórhjóli eftirför í Mosfellsbæ með nokkrum hasar um klukkan hálf sex í dag. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og naut lögregla aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Innlent 14. september 2024 21:15
Mikilvægi vísinda í þróun endurhæfingarstarfs á Reykjalundi Á fallegum stað í Mosfellsbæ er Reykjalundur endurhæfing ehf, stærsta endurhæfingarstöð landsins. Þar fá árlega 1400 einstaklingar með fjölþættan vanda, læknisfræðilega þverfaglega endurhæfingu samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Skoðun 13. september 2024 09:45
Þörf á úrræðum fyrir hátt í hundrað og þrjátíu börn Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa óskað eftir fundi með ráðherrum og kallað er eftir því að skýrsla sem hefur legið ofan í skúffu í rúmt ár verði tekin upp. Samkvæmt henni er þörf á úrræðum fyrir um eitt hundrað og þrjátíu börn með fjölþættan vanda eða miklar þroska- eða geðraskanir. Innlent 9. september 2024 13:30
Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Forsvarsmenn Bónuss og Jysk hafa samið við Reiti um verslunarhúsnæði í Korputúni. Vegagerð er þegar hafin í nýju atvinnuhverfinu, sem rísa mun við Vesturlandsveg á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið tilheyrir Blikastaðalandi í Mosfellsbæ þar sem fyrirhuguð er umfangsmikil uppbygging nýs íbúðahverfis. Viðskipti innlent 9. september 2024 10:54
Tólf fermetra smáhúsið innréttað og tilbúið Alveg einstakt 12 fermetra sumarhús í Mosfellssveit er nú innréttað alveg ótrúlega fallega og tilbúið að njóta. Lífið 6. september 2024 11:33
„Við þurfum ekki að vera með hníf hérna í höfuðborginni“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir vopnaburð hafa aukist og samhliða því stunguárásis. Hann segir það orðið afar algengt að lögreglan leggi hald á hnífa í útköllum sem ekki tengist vopnaburði. Flestir sem beri hnífa beiti þeim ekki en það sé samt líklegra að einhver beiti hníf ef hann er með hníf á sér. Hann segir lausnina við vandamálinu ekki að refsa bara. Það verði að finna fleiri leiðir. Innlent 4. september 2024 10:49
Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin. Innlent 1. september 2024 18:48
Mikill viðbúnaður í túninu heima Skipuleggjandi hátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ segir hana farið að mestu leyti vel fram fyrir utan líkamsárás á föstudag þar sem hníf var beitt. Viðbúnaður hafi verið töluverður og gæsla hafi verið aukin til muna eftir stunguárásina á menningarnótt. Innlent 1. september 2024 14:38
Hnífi beitt á bæjarhátíðinni Í túninu heima Lögreglan var með mikinn viðbúnað í gær og í nótt vegna bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ. Hnífi var beitt í líkamsárás á hátíðinni á föstudag en fórnarlambið slapp við áverka. Gerandi er þó enn ófundinn og hefur lögregla ekki upplýsingar um viðkomandi að svo stöddu. Innlent 1. september 2024 08:16
15 fatlaðir starfsmenn hættir á Múlalundi Miklar breytingar eiga sér nú stað á starfsemi Múlalundar á Reykjalundi í Mosfellsbæ því þar er fólk með fötlun að missa vinnuna og einhverjir eru að hverfa til annarra starfa. Fimmtán fatlaðir starfsmenn voru kvaddir í gær, þar af einn starfsmaður, sem hefur unnið á Múlalundi í 38 ár. Innlent 31. ágúst 2024 20:05
Tugir barna á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu Börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í nærri öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Um 36 bíða í Garðabæ, 23 í Hafnarfirði og 141 barn í Kópavogi. Ekkert barn bíður í Mosfellsbæ en fimm á Seltjarnarnesi. Í Reykjavík er enn verið að vinna að innritun og fjöldi á bið enn óljós. Innlent 18. ágúst 2024 22:54
Kom að heimilinu í ljósum logum Heimili Helgu Skowronski og fjölskyldu hennar varð fyrir stórtjóni í seinasta mánuði þegar eldur kviknaði í húsi þeirra. Talið er að eldurinn hafi átt upptök sín í fitubakka undir útigrilli. Helga var nýlega byrjuð að koma sér fyrir í húsinu og segir erfitt að lýsa tilfinningunni sem fylgdi því að horfa upp á framtíðarheimilið í rjúkandi rúst. Innlent 18. ágúst 2024 10:00
Starfsemi skert í tíu leik- eða grunnskólum í Reykjavík í vetur Í Reykjavík eru tíu leik- og grunnskólar að hluta eða alveg óstarfhæfir nú þegar skólastarf er að hefjast. Þar af er um að ræða níu leikskóla og einn grunnskóla, Hólabrekkuskóla. Innlent 17. ágúst 2024 23:40
Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Tíu slösuðust í jafnmörgum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Ökumanni og notanda rafhlaupahjóls greinir á um hvort árekstur hafi orðið í Nóatúni. Innlent 14. ágúst 2024 15:42
Gunnar Nelson mætti á golfbíl Frábær þátttaka og mikil gleði var á golfmóti Dineout Open sem fór fram í blíðskaparveðri á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Mótið var haldið í fjórða sinn þegar um 230 keppendur mættu til leiks en færri komust að en vildu eins og síðustu ár. Lífið 13. ágúst 2024 20:00
Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Slys varð á fólki við aftanákeyrslu sem varð í Mosfellsbæ í dag. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 9. ágúst 2024 14:55
Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í útkall í Flugumýri í Mosfellsbæ í gærkvöldi vegna tilkynningar um skothvelli sem barst á tíunda tímanum. Fulltrúar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru á vettvangi ásamt samningamanni á vegum ríkislögreglustjóra í langan tíma og lokað var fyrir umferð um Skarhólabraut til um eitt í nótt. Innlent 4. ágúst 2024 10:40
Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Allar tiltækar slökkviliðsstöðvar voru kallaðar út vegna elds í Mosfellsbæ. Eldur kviknaði í hjólhýsi og læsti sér í nærliggjandi byggingu. Ekki er vitað hversu mikið tjón varð af en búið er að slökkva eldinn að mestu leyti. Innlent 31. júlí 2024 11:29
Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Tiltölulega litlar skemmdir urðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þegar hestastóð kom í óvelkomna heimsókn þangað seint í gærkvöldi. Vallastjóri telur líklegt að hestarnir hafi sloppið úr gerði nærri vellinum þar sem hann liggur við Leiruvog. Innlent 25. júlí 2024 09:22
Syngjandi hundur í Mosfellsbæ Hundurinn Snjólfur í Mosfellsbæ er engin venjulegur hundur því það allra skemmtilegasta sem hann gerir er að syngja. Röddin brenglaðist reyndar aðeins í honum þegar hann var geldur á dögunum. Innlent 4. júlí 2024 20:04