Meistaradeildin

Meistaradeildin

Keppni hinna bestu í Evrópu.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Stór­stjarnan biðlar til stuðnings­manna Liverpool

    Dominik Szoboszlai skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu um helgina en það dugði Liverpool ekki til sigurs. Liðið mætti ísköldu Tottenham-liði á heimavelli en tókst samt ekki að landa sigri. Vonbrigðin voru gríðarleg hjá stuðningsfólki Liverpool en sá ungverski biðlar til stuðningsmannanna og skorar á þá að standa með liðinu.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester

    Kylian Mbappé og Jude Bellingham fara báðir með liði Real Madrid til Manchester þar sem síðari leikur liðsins við Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram annað kvöld.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Það er kannski einn sem má svindla“

    Real Madrid saknaði ekki mikið stórstjörnunnar Kylian Mbappé í 3-0 sigri sínum á Manchester City í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þessi frammistaða liðsins án Mbappé kallaði á kenningar hjá sérfræðingi í Meistaradeildarmörkunum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Sagði 35 sinnum fyrir­gefðu við boltastrákinn

    Chelsea tapaði með þriggja marka mun í fyrri leik sínum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og pirringurinn fór vel yfir mörkin þegar Chelsea-maðurinn Pedro Neto hrinti boltastrák.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Norska ævin­týrið ætlar engan endi að taka

    Það er allt útlit fyrir að Bodö/Glimt frá Noregi verði með í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, gegn Arsenal eða Leverkusen, eftir frábæran 3-0 sigur norska liðsins á Sporting Lissabon í kvöld.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“

    Fjöldi markvarða, þar á meðal Peter Schmeichel og Joe Hart, hafa lýst yfir stuðningi við Antonín Kinsky, markvörð Tottenham Hotspur, eftir skelfilega frammistöðu hans í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Hjör­var ó­sam­mála goð­sögn í hita­máli dagsins

    Hjörvar Hafliðason, helsti sparkspekingur þjóðarinnar, er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem hafa gagnrýnt Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Hjörvar telur Tudor hins vegar ekki stætt lengur í starfi.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Þú ert bara að niður­lægja þinn eigin leik­mann“

    Antonin Kinsky, 22 ára markvörður Tottenham, upplifði algjöra martröð í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann var tekinn af velli á sautjándu mínútu eftir að hafa gefið tvö mörk og fengið á sig þrjú. Kinsky og skiptingin voru til umræðu í Meistaradeildarmörkunum eftir leikinn.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir?

    Tottenham er í afar erfiðri stöðu eftir stórt tap gegn Atletico Madrid á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dagar Igor Tudor í starfi knattspyrnustjóra liðsins gætu verið taldir. Lokatölur í kvöld 5-2 sigur Atletico Madrid.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Bæjarar gengu frá Atalanta

    Bayern Munchen gjörsamlega valtaði yfir ítalska liðið Atalanta á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ítalska liðið þarf kraftaverk og meira til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum í seinni leik liðanna eftir viku. Lokatölur 6-1 sigur Bayern Munchen.

    Fótbolti