Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Lögregla hefur lokið rannsókn á andláti áttræðs karlmanns í Garðabæ. Dóttir hans á þrítugsaldri sætir gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa ráðið föður sínum bana. Innlent 25.6.2025 14:05
Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Gæsluvarðhald yfir karlmanni um fertugt sem grunaður er um alvarlega líkamsárás í Úlfarsárdal í síðustu viku hefur verið framlengt um fjórar vikur og gildir þar með til 22. júlí. Innlent 25.6.2025 13:30
Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Raunveruleikastjarnan Bassi Maraj hefur verið sakfelldur fyrir líkamsáras á leigubílstjóra. Atvikið átti sér stað fyrir rúmum tveimur árum. Innlent 25.6.2025 12:27
Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Alvarleg stunguárás var framin í Reykjanesbæ í á laugardagskvöld. Árásarmaðurinn hefur nú verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Innlent 23. júní 2025 11:42
Neita öll sök í Gufunessmálinu Öll fimm sem ákærð eru fyrir aðild að Gufunessmálinu svokallaða neituðu sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Þrír karlmenn eru ákærðir fyrir að bana manni á sjötugsaldri, einn fyrir peningaþvætti og ein kona fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni. Innlent 23. júní 2025 11:09
Handtekinn fyrir að sveifla hamri Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann sem var að sveifla hamri á almannafæri. Er lögreglu bar að garði var búið að afvopna manninn og var hann handtekinn á vettvangi. Innlent 23. júní 2025 07:10
Enn annað innbrot í Laugardalnum Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í geymslu í hverfi 104. Ekki er vitað hver gerandinn var. Í gær var greint frá því að brotist hefði verið inn á heimili í hverfinu á meðan íbúarnir voru heima og í fyrradag var greint frá því að brotist hefði verið inn í verslun. Innlent 22. júní 2025 18:35
Bíll valt eftir aftanákeyrslu Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir aftanákeyrslu sem olli því að bíll valt á Reykjanesbraut í morgun. Innlent 22. júní 2025 16:41
Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur einstaklingum sem sáust brjóta rúðu í húsbíl. Þeir eru grunaðir um eignaspjöll og voru báðir handteknir í lögregluumdæmi þrjú, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt. Innlent 22. júní 2025 08:36
Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lögregla fór á vettvang eftir að tilkynning barst um innbrot og þjófnað í hverfi 104 í Reykjavík. Íbúarnir voru heima en þjófurinn komst út með þýfið og lét sig hverfa þegar hann varð heimilismanna var. Innlent 21. júní 2025 17:22
Sigríður fannst heil á húfi Sigríður Jóhannsdóttir, 56 ára Kópavogsbúi sem leitað hefur verið að frá því um síðustu helgi, fannst heil á húfi skömmu eftir hádegi og var hún færð á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 21. júní 2025 14:07
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einn einstakling eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Árásarþoli var með alvarlega stunguáverka og er á sjúkrahúsi en líðan hans er stöðug. Einstaklingurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 21. júní 2025 13:48
Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Starfsfólk lögregluembættisins á Suðurnesjum segist taka eftir því að einstaklingar sæki um vegabréfsáritun hérlendis án þess að hyggjast ferðast um landið. Svar við umsóknum berst hraðar hérlendis og nýta einstaklingar sér það til að komast inn á Schengen-svæðið. Lögreglustjóri kallar eftir skýrari lagaheimild til að afturkalla vegabréfsáritanir. Innlent 21. júní 2025 11:14
Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi vegna vinnuslyss. Steypumót hafði fallið sá starfsmann byggingarfyrirtækis. Innlent 21. júní 2025 07:27
Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Skýrslur verða teknar af þrjátíu og fimm einstaklingum í næstu viku í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Jónssonar. Bróðir Jóns Þrastar segir skýrslutökurnar marka tímamót í málinu. Innlent 20. júní 2025 20:56
Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Maður fékk járnstöng í andlitið á vinnustað sínum í Laugardal í dag. Hann fékk skurð á ennið og var fluttur í sjúkrabíl á bráðamóttökuna. Innlent 20. júní 2025 20:20
Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Leitinni að Sigríði Jóhannsdóttur, sem hefur verið saknað í viku, verður fram haldið um helgina. Leitarsvæðið hefur verið stækkað og leitarflokkar munu leggja áherslu á Elliðaárdal og austurhluta borgarinnar. Innlent 20. júní 2025 18:00
Maðurinn er fundinn Maðurinn sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í vikunni er fundinn. Innlent 20. júní 2025 15:01
Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Ekki yrði lengur refsilaust fyrir einstaklinga að hindra rannsókn lögreglu á nánum vandamönnum þeirra samkvæmt áformum dómsmálaráðherra. Nýlegt dæmi er um að forráðamenn pilts sem varð ungri stúlku að bana hafi reynt að hylma yfir með honum. Innlent 20. júní 2025 14:47
Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri brotastarfsemi er umfangsmikil og enn yfirstandandi samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Lagt hefur verið hald á muni og efni til fíkniefnaframleiðslu. Innlent 20. júní 2025 14:07
Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Gæsluvarðhald yfir franskri konu á sextugsaldri, sem grunuð er um að hafa ráðið eiginmanni sínum og dóttur bana á Edition-hótelinu í Reykjavík, hefur verið framlengt um tvær vikur á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 20. júní 2025 13:42
Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað fimm einstaklinga í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fíkniefnaframleiðslu. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu víða um land, meðal annars á Raufarhöfn, á miðvikudag. Innlent 20. júní 2025 13:18
Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf á Írlandi fyrir sex árum er með tilgátu um að leigumorðingi hafi farið mannavillt og drepið hann í staðinn fyrir annan Íslending. Írskir lögreglumenn eru væntanlegir til Íslands í næstu viku til þess taka skýrslu af tugum manna vegna hvarfs Jóns Þrastar. Innlent 20. júní 2025 09:12
Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Írskir lögreglumenn koma til Íslands í næstu viku í tengslum við rannsókn þeirra á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar, en síðast er vitað um ferðir hans í Dyflinni á Írlandi í febrúar 2019. Innlent 19. júní 2025 17:03